La vita e'Bella i Happyvalley

Daisy

24.05.2011 08:47:10 / Daisy

Er þetta ég í hnotskurn !!!

Aldís Steinunn Mortensen, 20-04-1969

Íslenska talnakerfið

Fæðingartala: 4
Nafn tala: 1
Sérhljóðatala: 11
Samhljóðatala: 8

Fæðingartala
fæðingartala: 4
Þessi tala ber með sér ákveðið, skilvirkt og trúfast fólk og er tala smiðsins. Með smið er átt við hvern þann sem vill vinna vandað verk í höndum eða byggja upp góð vinasambönd eða vinna að stærri verkefnum. Þessi tala krefst þess að vera iðinn við það sem verður vandað eða hefur merkingu, hún er ábyrgðarfull og tekur sig og lífið alvarlega. Stundum þarf hún að læra að taka það rólega gagnvart öðrum og gefa öðrum svigrúm til að vera með. Henni hættir til örlítillar fullkomnunar áráttu og fá verkin á heilann. Í sinni neikvæðu mynd getur talan borið með sér ósveigjanleika og þrjósku, og jafnvel of mikils sjálfsaga. Faglega nýtur þessi tala sín best þegar hún er í stuðnings hlutverki eða er mikilvægur þáttur í verkinu, en vill að aðrir séu við stjórnvölinn. Hún getur þó vel tekið ákvarðanir og á auðvelt með að taka góðar og réttlátar ákvarðanir. Mikilvægt er þessari tölu að starfa við sín áhugamál. Fjárhagslega er mikilvægt hér að gera langtíma áætlanir, þekkja vel þarfir sínar og einnig að vita hvers virði framlag manns er. Í fjölskyldumálum þarf þessi tala mikinn stöðugleika. Henni hættir til að vera dálítið þrjósk þegar kemur að tilfinningamálum og fýlu ef hún fær ekki sitt fram, en hún er fljót að fyrirgefa. Hún þarf stundum að læra að ekki eru allir jafn færir og húnsjálf. Heilsufarslega er þessi tala mjög sterk en þarf að vera vakandi fyrir áhrifum fæðu á heilsu sína. Hennar helsti heilsubrestur kemur fram ef hún iðkar þrjósku og ósveigjanleika gagnvart sjálfri sér og öðrum. Hér er mikilvægt að ganga mikið, sérstaklega úti í náttúrunni.

Nafntala
nafntala: 1
Sjálfstraust og sjálfsefling er það sem þú leitar eftir í þessu lífi. Þú vilt þroska sjálfið þitt og þá ekki í eigingjörnum tilgangi heldur sem skref á þroskabraut. Þetta skref færir þig nær því að verða leiðtogi eða í forsvari fyrir aðra. Þú ræður yfir þeirri tækni sem þarf til að vera skapandi og vinna frumlega í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur. Með öllu þessu áttu auðvelt með að leysa úr vandamálum og þú átt auðvelt með að koma slíkum lausnum í framkvæmd. Mælt er með því að tileinka sér framsýni því aðgerðakraftur getur fengið mótbyr. Þessi orka getur einnig fært með sér óttann við höfnun og ótta við að vera einn og yfirgefinn, þó hefur þessi orka einnig þörf fyrir einveru. Oft er besta sköpunin og besta framkvæmdin í kjölfar einveru.

Sérhljóðar
serhljodar: 11
Hugsjónir, uppljómun og samvinna er þín hvatning. Þú átt auðvelt með að læra á og skilja hið óhlutbundna í hinu veraldlega, skilja hið óskiljanlega og bæði heila aðra og sýna mikla samúð. Fyrir þér er hið dularfulla og flókna í lífinu oft einfalt og augljóst og með visku þinni og þekkingu kemurðu oft á óvart. Þessari tölu veitist því létt að leiðbeina, kenna og deila með öðrum svo þeir njóti góðs af. Gott er þessari tölu að iðka hreyfingu, því hún getur fundið til taugaspennu ef hún fær ekki útrás, sérstaklega ef hún er viðkvæm fyrir hve aðrir geta verið blindir á það sem henni er svo augljóst. Þessi tala fylgir með miklum gáfum og innblæstri, góðum andlegum gáfum og henni er mikilvægt að gefast ekki upp þótt hún tali oft fyrir daufum eyrum.

Samhljóðar
samhljodar: 8
Þú hefur innri þrá til að vera í viðskipta og athafnalífi. Þér er sama þó það gæti verið frami í pólitík, verslun eða framleiðslu, en þú nýtur þín ef þú ert í virðingarstöðu og nærð langt. Þú getur ekki sætt þig við að finna frama í einhverju skrifstofustarfi sem býður öryggi ef þar er enginn frami í boði. Þú vilt finna metnað og fylgja honum eftir, en þú gætir lent í að það bitni á heimilislífinu.


» 16 hafa sagt sína skoðun

14.04.2011 06:49:19 / Daisy

Hvað er eiginlega að ... !!!

Nú bara varð ég að setjast niður og ausa úr mér ... það svoleiðis sýður á minni núna :^)

Og yfir hverju er hún nú brjáluð NÚNA !!!  Já, það er nú það.

Hvað er að krökkum í dag, grínið er svoleiðs komið út fyrir öll velsæmismörk.

Þannig er að Elena mín fór á kóræfingu í gær uppí kirkju og að lokinni æfingu hringir hún í mig hágrátandi og það var varla hægt að skilja það sem aumingja barnið sagði.
Náði því þó að ein af hennar bestu vinkonum, Hilde, hafði fengið tilkynningu um fráfall besta vinar sins fyrr um daginn, drengs sem er 2 árum eldri en þær og býr í öðrum bæ.  Aumingja stúlkan brotnaði niður á miðri kóræfingu og því fylgdi að allir fengu sjokk, það var mikill grátur enda ekkert venjulegt dauðsfall.  (Og þetta gerist í skugga þess að hluti kórsins hafði í síðustu viku gengið fram á lík ung manns sem hafði dáið af of stórum skammti heróins rétt fyrir utan skólalóðina.  Elena var ein af þeim sem hafði séð manninn og öll fengu þau áfallahjálp hjá skólanum, en þetta er ennþá í fersku minni svo fréttin í gær sló þau virkilega).

En vinur hennar Hilde hafði víst verið með sínum besta félaga eins og alla aðra daga en eitthvað gerðist í skólanum í gær sem varð til þess að félagi hans varð sér útum byssu og skaut og drap þennan svokallaða besta vin sinn.  Og eins og það hafi ekki verið nóg, þá fylgdi það fréttinni að fleiri hefðu verið þarna og einhver hafði tekið video af drápinu og sent til foreldra fórnarlambsins.

Hérna vorum við öll sjokkeruðu yfir að heyra þetta og að reyna að hughreysta Elenu sem var nú að upplifa aftur sáran söknuð ... því það að sjá vinkonu sína gráta vin sinn vakti upp tilfinningarnar og söknuðinn eftir okkar yndislegu kisu, Lizzy, og hennar skyndilega fráfall í nóvember. 

Elena sofnaði og svaf þokkalega í nótt, vaknaði í morgunsárið og að lokum hennar venjulegu morgunverka fór hún í skólann.  Og hvað gerist .....
Rétt í þessu sendi hún mér SMS frá skólarútunni ...

"Í alvörunni ... þetta var allt grín 8|
Heyrði það núna, HVER GRÍNAST með svona mamma?"

HVAÐ ER AÐ .... !!!!!!!!!!!!

Fyrsta sem kom upp i huga minn var önnur svona frétt sem við fengum fyrir jól ...

Þá var það þannig að við höfðum verið uppí bústað yfir helgi og á sunnudeginum þegar við vorum að keyra heim þá fengum við þær fréttir að maður æskuvinkonu Vidars hafði dáið þann dag eftir stutt veikindi, dularfullur sjúkdómur, blóðeitrun halda þeir en ekkert nánar hefur komið útúr krufningu.  Hann varð bara 42ja ára og lætur eftir sig konu og tvö börn.
Leið og miður mín hringi ég í son minn sem þá sat með þáverandi kærustu sinni á spítalanum sem lá inni vegna alvarlegra veikinda.  Hann sagði mér þá að hann hefði einmitt fengið fréttir að heiman, góður vinur hans fallið frá.  Eitthvað voru fréttirnar óljósar, talað var um sjálfsvíg vegna eineltis sem hann varð fyrir þar sem hann var samkynhneygður.  Ég sagði þá syni mínum að við skyldum tala betur saman þegar heim var komið .... og eins og þetta hafi ekki verið nóg þá keyrum við yfir kött sem lá dauður á veginum .... :cry:

Þegar heim var komið þá setjumst við niður að ræða þær sorgarfréttir sem við höfðum fengið á heimleiðinni.  Vorum öll í sjokki yfir óskiljanlegu fráfalli Terje sem var flottur og frískur ungur maður í fullum gír þegar við höfðum hitt hann nokkrum vikum áður og nú var hann allur .. :(
Þegar Erik kemur svo heim þá ætlaði ég að fara að hughreysta hann en í stað samúðar varð ég virkilega reið ... hversvegna !!! Jú, vegna þess að þegar hann var rétt ókominn heim fékk hann önnur skilaboð að heiman.  Félagi hans var í góðum fíling heima, einhverjum fannst þetta víst alveg brilliant hrekkur, að ljúga um sjálfsvíg :^)
Vá hvað ég varð reið ..........

Finnst fólki það virkilega fyndið að ljúga um morð og sjálfsvíg ???

» 24 hafa sagt sína skoðun

05.04.2011 11:30:12 / Daisy

ICESAVE !!!

Það er allt að verða vitlaust útaf ICESAVE samningunum og kosningunni sem er um næstu helgi.  Hef ekki sett mig allt of mikið inní málið þar sem ég ætla alla vega EKKI að borga þetta .... eða get ég sagt það !!!  Erum við ekki að borga allan andsk.... í sköttunum okkar?

Frændi minn, Eggert Hjelm, virðist hafa smá pæling ... eða a.m.k. áhuga á málinu og hann er þeirra skoðunnar að íslendingar eiga að kjósa JÁ!
Og er hann þar með SÁ EINI sem ég þekki sem er þeirra skoðunnar.
Kannski á ég ekkert með að babbla um þetta þar sem ég flúði land, blessunnarlega fyrir sukk, svínaríið og þynnkuna sem er enn að hrjá landan, en samt .....
Ætla allir að kjósa NEI !!! ....  Hvað gerist þá?

Hefði ekki verið alveg brilliant að fá judge Judy til að komast til botns í málinu?  ;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

17.03.2011 09:23:48 / Daisy

"Best fyrir"

Hvernig stendur á því að allir skápar og geymslur fyllast af ótrúlegustu hlutum, bæði neysluvörum og hlutum!!!  Erum við svoldið slöpp að losa okkur við það sem við hvorki þurfum lengur eða er útrunnið á dags.?  Ég veit allavega að ég er ekki ein um þetta vandamál (þó er ég duglegri að stafla og raða inní alla skápa og hef hluti ekki flæðandi útum allt hús en margir aðrir) því það eru þó nokkrir sjónvarpsþættir sem fjalla um þessi mál þar sem söfnunnaráráttan fer út fyrir öll skynsöm mörk.

Ég á afskaplega erfitt með að losa mig við hluti en ég er öll að koma til.  Leyfði meira að segja manninum mínum að kasta fullt af "drasli" úr bílskúrnum og keyra á haugana ... spor í rétta átt ;)  Og svo tók ég í gegn skápana inná baði og kastaði út 2 fullum pokum af allskonar kremum og vörum sem voru lööööööngu komar á dato en þó nokkuð óopnað :$
Hversu lengi geymist annars bodylotion ... og spritt .... og hárvörur ...  og og ???

Ég tók líka eldhússkápana og að loknu vel unnu verki fræddi ég manninn minn um það að við gætum lokað og læst hurðinni og lifað góðu lífi hérna í a.m.k. hálft ár án þess að svelta :haha:  Samt ekkert í ruslið hérna þar sem maturinn er ekki kominn á dato :lol:

Næstu viku verkefni er háaloftið og Eriks herbergi ... ætla að gera mér hobbyherbergi :haha:

Hvað með þig ... ert þú með fulla skápa og geymslur ???

En nú ætla ég að njóta dagsins og í kvöld verður það konsert með Åge Aleksandersen i Osló og vá hvað ég hlakka til :haha:

LEVE LIVET

» 17 hafa sagt sína skoðun

07.03.2011 12:44:49 / Daisy

Hvað telur ... !!!

..... jú, stigin telja að lokum ... 3 fyrir sigur
Þetta þarft ekkert að ræða neitt frekar og þótt að eitt og eitt stig tapist yfir til annarra liða þá "so be it" ... :$

Mér finnst það alltaf svo merkilegt með þörf áhangendur enskra fótboltaliða að rakka niður andstæðingana.  Hlutirnir eru ekki svo flóknir að maður þurfi að vera "Rocket scientist" til að sjá að MAN. UNITED er liðið sem oftast hefur staðið uppi sem sigurvegarinn og er þar af leiðandi BEST.
En maður á ekki að venja sig á að fagna áður en tímabilið er liðið, sérstaklega ekki ég þar sem hroki felur allaf í sér fall ... en svona lítur stigataflan út í dag ...

#LagSVUTMålP
1 Manchester Utd 29 17 9 3 63-30 60
2 Arsenal 28 17 6 5 57-27 57
3 Manchester City 29 15 8 6 45-25 53
4 Chelsea 27 14 6 7 48-23 48
5 Tottenham 28 13 9 6 41-34 48
6 Liverpool 29 12 6 11 39-36 42
7 Bolton 29 10 10 9 42-40 40
8 Sunderland 29 9 11 9 33-35 38
9 Newcastle 29 9 9 11 44-41 36
10 Everton 28 8 12 8 37-37 36
11 Fulham 29 7 14 8 32-31 35
12 Stoke 29 10 4 15 32-38 34
13 Aston Villa 29 8 9 12 37-50 33
14 Blackburn 29 9 5 15 37-49 32
15 Blackpool 28 9 5 14 42-55 32
16 West Bromwich 29 8 8 13 39-54 32
17 West Ham 29 7 10 12 36-49 31
18 Birmingham 27 6 12 9 26-38 30
19 Wolverhampton 29 8 5 16 34-49 29
20 Wigan 29 5 12 12 27-50 27


Ekkert lið hefur skorað fleiri mörk í ár en United og eingöngu 3 lið hafa fengið á sig færri mörk en þeir.   Hefði alveg viljað sjá Newcastle aðeins ofar á töflunni men men ...
Skiptir ekki svo miklu máli lengur þar sem Alan Shearer er ekki lengur með þeim ;)

En er ekki alltaf best að horfa bara á staðreyndirnar ...
Flestir titlar frá stofnun Premier League, tímabilið 92-93 til dagsins í dag ...
Manchester United, unnu PL 11x
Frá stofnun ensku deildarinnar 1888-1992 deildu þeir toppnum með Liverpool, 18 titlar á hvort lið ... þannig að frá upphafi ensku deildarinnar árið 1888 til 2010 hefur Man. United unnið deildina 29x ... oftast allra liða frá upphafi ;)
Eigum við að ræða þetta eitthvað frekar :haha:

Að lokum heiðra ég Man. United með að breyta blogginu mínu í rauða United litinn og eins vil ég óska Liverpool til hamingju með stigin sín 3 frá síðasta leik ... enjoy ;)


» 16 hafa sagt sína skoðun

02.03.2011 09:20:13 / Daisy

Stund á milli stríða ...

... við gráu hárin ........
Smá stund sem ég hef núna eftir að ég setti restina af litnum í hárið.  Áðan var það rótin og korteri seinna restin af hárinu.  Já það er ekki tekið út með sældinni að eldast, sérstaklega ekki fyrir okkur konurnar.

Það sem var að gerjast í huga mínum á meðan ég reyndi að lífs og sálar kröftum að þekja öll silfruðu (hljómar betur er gráu) hárin var hversu gott blessaðir drengirnir okkar hafa það.
Við þurfum að lita hárið á meðan þeir verða bara meira sem velþroskaðir silfurrefir.
Líkamshár eru SYND á okkur en loðnar  bringur, skeggbroddar og önnur líkamshár eru merki um karlmennsku.
Förðun, dag,- kvöld,- party,- o.s.f. ..... rakagefandi fyrir elskurnar okkar ... ef þeir nenna ;)
Að ég tali nú ekki um fatnaðinn.  Alvöru kona lætur ekki sjá sig of oft í sömu flíkinni ... og alls ekki fyrir sitt litla líf 2x með sama fólkinu 8|  Karlmenn, jakkafötin klassísku og þeir eru í góðum málum.  Frúin þeirra sér um að skipta út bindinu og skyrtu eftir aðstæðum.
Já, þeir hafa það gott þessar elskur.

En vá ... nú verð ég að henda mér í sturtuna, þrífa úr litinn, raka leggi og armkróka, þurrka hár og slétta ... klína á smá dagförðun og finna mér svo eitthvað sómasamlegt til að skreyta minn fagra og nýstellta kropp áður en ég hendi mér í sófann með prjónana svo litli bróðir minn geti nú verið stoltur af mér  :haha:

Eigiði góðan dag elskurnar

» 16 hafa sagt sína skoðun

28.02.2011 12:43:32 / Daisy

Tækni og framfarir ...

Þegar ég ólst upp þá fórum við á milli húsa, bönkuðum á dyrnar og spurðum hvort viðkomandi "vildi vera memm og koma út að leika".  Oftast var það svo að hálf nágrennið var úti í leikjum og allir skemmtu sér vel.  Þá höfðum við ekki tölvur og gemsa ...
Við kunnum að leysa ágrenninga þegar þeir komu upp og við lærðum að rökræða og leggja fram málamiðlanir ... það var fyrir tíma Del-takkans og X-ins efst í hægra horni skjásins.

Ekki misskilja mig, ég er alsæl með tölvuna og tæknina, til og með facebook finnst mér vera frábært verkfæri þar sem maður er allt í einu aftur komin í samband með þá sem "voru memm" í den.  Og fyrir eina forvitna þá finnst mér æði að skoða myndir af börnum vina minna og geta fylgst aðeins með úr fjarlægt ... stundum eins og að liggja á glugganum hjá fólki hehe 

En það sem mér blöskrar er síminn ... gemsinn.
Ég bara varð að tjá mig um þetta apparat sem hvert mannsbarn verður að hafa því Guð forði okkur frá því að vera "utan svæðis" eða "slökkt á símanum".
Ég var svoooo mikið á móti gemsanum þegar hann fyrst kom á markaðinn en fljótlega varð ég álíka meðvirk og jafn háð þessu og flestir aðrir.  Að ég tali nú ekki um öll smsin ...
Nei, nú ætla ég að gera eitthvað í þessu á mínu heimili ...

Bara kostnaðurinn við þetta er óheyrilegur.  Skoðum þetta á ársgrundvelli.
Símareikningar hjá okkur hafa rokið frá 100.000,- fyrir árið 2006 uppí 350.000,- ísl kr í 2010, mest var það árið 2009 þegar ársnotkunin fór vel yfir 400.000,-  
Þá vorum við reyndar með ansi marga síma á heimilinu en samt sem áður ...
Hefði frekar kosið að eyða þessum peningum í utanlandsferð fyrir fjölskylduna eða eitthvað annað sem skilur meira eftir sig en blaður ...

I´m going back to basic .... heimasími í heimasíma ;-)  

Og til ykkar allra sem eru svo dugleg að senda mér allskonar keðjuSMS, 
ég kem hvorki til að senda það áfram né tilbaka til ykkar en það þýðir ekki að mér þyki ekki vænt um ykkur né óski ykkur alls hins besta ... finnst bara ég hafi borgað nóg til símafélaganna.  Ætla framvegis að nota þá í fjölskylduna mína og heimilið :d

 

» 20 hafa sagt sína skoðun

07.01.2010 08:28:30 / Daisy

Tilviljanir ... örlög !!!

Frá því ég var krakki langaði mig alltaf til að flytja til útlanda.  Útlönd voru svo spennandi og sem 12 ára stelpuhnáta var ég komin með fullt af erlendum pennavinum sem ég skrifaðist á við í mislangan tíma.  Mest voru þetta um 30 krakkar frá Ástralíu til Cananda og einhverjar pennavinkonur átti ég jú auðvitað líka á Íslandi. 
Ég man að fyrst, áður en ég var orðin "mellufær" og skrifandi á ensku þá sendi ég bréfin mín til Dísar frænku sem þá var í skóla í Reykholti og hún þýddi þau og hjálpaði mér svo að skrifa til baka.  Já maður dó ekki ráðalaus ;)
Seinna flutti Dís til Englands og svo til Noregs áður en hún settist svo að á fróni.  Systir hennar, Heiðbrá, fór sem ung dama til Bandaríkjana, þaðan til Danmörku og endaði svo í Noregi fyrir tæpum 30 árum ... og hér er hún enn þessi elska sem og enn ein systirin, Ásdís, sem kom til Noregs fyrir 30 árum sem málari ... og hún er enn að ;)  Einn bróðirinn kom hingað líka sem og bróðir minn hann Kalli kúla (eins og Heiðbrá kallar hann alltaf, veit ekki afhverju ;) )  Sem sagt ... móðurfjölskyldan mín hefur greinilega sterkar taugar til konungsríkisins Noregs ... og föðurfólkið mitt til nágrannalandsins Danmörk en þar á ég einmitt líka fullt af fólki :haha:  OG ... ég fæddist nú sem danskur ríkisborgari ..... fyrir rúmum 20 árum ;)  Þar býr tvíburasystir hans pabba, dóttir hennar hún Maríanna Björg mín og Kim og Liz sem eru elstu börn Kaj, bróður hans pabba og fjölskyldur þeirra allra ...
Ég kvaddi aldrei þann draum minn að flytja til útlanda og 17 ára fór ég til Rye í New York til að starfa þar sem Au Pair.  Þetta varð bara til þess að ég varð ennþá ákveðnari í að flytja en nú var ég allt í einu heilluð að stóru Ameríkunni.  Það varð til þess að ég byrjaði að leggja drög að fluttningi þangað um leið og ég var komin heim aftur .. en þá gripu örlögin inní ég "festist" á eyju í miðju Atlantshafinu og ég reyndi að gera mitt besta til að "njóta þess" að búa þar.  Það gekk ekki eftir og að lokum kom tíminn ... MINN TÍMI ... Ég vissi alltaf að MINN TÍMI MYNDI KOMA ;) 
Nú skildi það ske ... nú skildi ég í alvörunni flytja til útlanda :haha:   Fyrir mig, sem þá var einstæð með 3 duglega og flotta krakka var valið á milli Danmörku og Noregs þar sem ég vissi að ef í harðbakkann færi þá hefði ég "öryggisnet" í öllu góða fólkinu mínu ... Valið var ekki létt en að lokum valdi ég Noreg.  Þá var eftir að finna sér staðsetningu í Noregi og eins mikið og Kalli og Dagmar reyndu að fá mig á vesturlandið ákvað ég frekar að vera á austurlandinu, ekki of langt frá Osló og Gardermoen.  Nú stóð valið á milli Drammen eða Ski ... og ég valdi Drammen ... sem betur fer ;) 
Tilviljanakennt val leiddi mig hingað í litla sæta húsið mitt á sléttunni þar sem ég hamingjusöm nýt lífsins með fallega og góða manninum mínum og börnunum okkar.
Er það tilviljun eða örlög !!!  Mér finnst ég loksins komin heim :haha:


» 19 hafa sagt sína skoðun

06.01.2010 07:51:03 / Daisy

Í dag kveður Kertasníkir ....

og ég segi  GLEÐILEGT NÝTT ÁR  kæra fjölskylda og vinir :d

Ég er viss um að síðasti sveininn hljóp hratt til fjalla í heitann hellinn hjá Grílu kerlingunni en í frostinu en hjá mér var -20 KULDAgráður þegar ég vaknaði í morgun ... en í Røros mældist kuldinn -41 brrrrrrrrrrrrrrrr :s
Já, það er víst óhætt að segja að vetur konungur hafi tekið sér bólfestu hérna í Noregi og er svona kulda spáð áfram ca næstu 3 vikurnar.  

Við hjónin tókum okkur ferð í skíðabrekkuna í Drammen síðastliðinn laugardag í -15 ... og það var kalt.  Gott skíðafæri og fullt af fólki í brekkunum enda kunna norðmenn að klæða sig samkv. veðri ... eitthvað sem er ennþá að vefjast fyrir mér :s  Verst var þó þegar helv.... lyftan bilaði þegar á meðan við sátum uppi á milli snæviþakta trjátoppana í eins og ég áður sagði, a.m.k. mínus 15 kuldagráðum og sólin farin.  Þar sátum við og frusum í klukkutíma, eða allt þar til þeir náðu að keyra vararafstöðina til að tæma stólalyftuna.  Vá hvað mér var kalt og þegar á toppinn var komið og aumingja lyftustjórinn á toppnum spurði okkur hvernig við hörfðum það þá var ekki svo létt að svara enda glömruðu í mér tennur og bein (heppin að vera ekki með falskar þarna, þær hefðu eflaust brotnað í glamrinu).  Ekki veit ég hvernig ég komst niður en það gekk eftir og ekki var ég sein á mér að hoppa inní bílinn, rífa af mér skó og sokka og þræða nýju þæfðu ullarvettlingunum sem móðir mín góð prjónaði handa mér í jólagjöf uppá frostnar tærnar og nudda í þær líf.  Vettlingarnir björguðu táslunum frá kuli en þegar heim kom og ég dró þá af mér fyrir framan heita kamínuna litu þeir mjög svo skemmtilega út með hæl og þumal :lol:

Mig langar ekki út í dag en ég neyðist víst til þess því ég verð að skjótast í búðina til að kaupa fleiri ullarnærföt fyrir heimasæturnar ... og mig kannski í leiðinni :haha:

Annars erum við búin að hafa það alveg einstaklega gott hérna um jólin en þá var fullt hús hjá okkur í Fredbo og mikið spilað, hlegið, bakað og prjónað ... (jú, mikið rétt, mamma var hérna ;) )  Pakkaflóðið gerði lukku og jólastemningin mikil. 
Enn og aftur sveik ég ykkur kæru vinir en engin jólakort komust úr húsi þessi jólin og í skaðabætur ætla ég að gleðja ykkur á facebook með jólagalsa á videói sem tekin var daginn sem mamma, pabbi og Erik komu hingað frá Íslandi .... Geiri Helga og Hanna Sóley eiga allavega eftir að njóta áhorfsins :lol:  Enjoy

Nú kveð ég að sinni en ég verð víst út í frostið og sækja meiri við til að kynda upp kofann.
Gleðilegt ár með nýjum tækifærum og vinum :haha:

» 18 hafa sagt sína skoðun

14.10.2009 13:22:31 / Daisy

Stjörnuljósið mitt :-)

Dóttir mín hún Ester Ösp :haha:  Systir hennar tók þessa mynd á símann sinn og gerði hana svona flotta :haha:


» 18 hafa sagt sína skoðun

12.10.2009 14:33:19 / Daisy

Kaos í hausnum á mér ....

Mig langar að blogga en ég nenni því varla, hef ekkert merkilegt að segja.  það er að fara að rigna ... oh nei, hætt við .. þetta er bara smá skúrir.  Eins gott, nenni ekki út að sækja viðinn sem ég var að ná í áðan .... æj jú, búin að því híhí sauðurinn ég.  Vá hvað tíminn líður ..... klukka er alveg að verða "friends" og ég næ sennilega að horfa á þáttinn áður en ég skelli mánudagsommelettunni á pönnunna.  Geri bara salatið á meðan ommelettan steikist.  Vá hvað skýin ferðast hratt um himininn núna, verður sennilega fínt veður á eftir þannig að Vidar getur þá skipt um dekk á bílunum.  ohhhhhh æi, mér er pínu illt í bakinu og úlliðunum eftir að kljúfa svo mikinn við í dag og í gær.  Verð kannski betri ef ef ég fæ Vidar minn til að nudda mig eftir kvöldsturtuna mmmmm oh hann er svooo mikið æði.  Guð hvað ég elska þennann mann.  Ég hlít að hafa gert eitthvað svakalega gott til að verðskulda hann ;) ..... wóó´...... vinir byrjaðir .......

» 19 hafa sagt sína skoðun

07.10.2009 11:02:27 / Daisy

The Twelve Irish Tenors

Alltaf eitthvað spennandi að gerast hjá mér :haha: var að kaupa miða á The Twelve Irish Tenors i Drammens Teather, miðvikudaginn 21. okt. :haha:  Hlakka svooooo til.

The Twelve Irish Tenors


Annars er það héðan að frétta að veðurguðirnir eru ekki alveg búnir að ákveða hvort það sé kominn vetur eða ekki ... hérna skín sólin og það er hlýrra í lofti en undanfarna daga en það blæs þó nokkuð.  Blæs svo pass mikið að ég verð að kveðja að sinni og koma mér út til að taka niður "pavilijongen" ;)
 
Adjö

» 13 hafa sagt sína skoðun

06.10.2009 10:34:50 / Daisy

Of mörg járn á eldinum ...

Það er rosalega erfitt að vera með allt of mörg verkefni í gangi, það er eins og mér verði þá mjög svo lítið úr verki :$ 

Ég er með fleiri þúsund myndir sem þarf að sortera, skanna og arkivera.
Að ég tali nú ekki um allar myndirnar sem ég á eftir að setja inn  hérna !!!
Bát sem býður átekta í bílskúrnum og þarf að klára.
Fjós sem býður spennt eftir því að taka á móti gestum og gangandi en á fyrst eftir að fá eldstæði inni og viðbyggingu.
Hlöðu, "stabbur", bílskúr og tvö íbúðarhús sem þarf að taka til í og tæma.
Planleggja fluttning á "Stabbur" frá bænum að hyttunni.
Samningagerðir við fullt af fólki ...
Baðherbergi og þvottahús sem þarf að byggja í kjallaranum.
Búa til forstofu og nýtt baðherbergi uppi.
Teikna og hanna nýjan bílskúr, sambyggðan húsinu ... já og byggja hann!
Teikna, hanna og byrja á nýjum palli og útieldhúsi.
Pússa upp eldhúsið mitt.
Sauma gardínur fyrir öll barnaherbergin.
Plana og bjóða í Halloween partý ... og skaffa okkur búninga ...
Já og sækja við ....... og ég gleymdi örugglega nokkrum atriðum !! :haha:

En svona verður þetta oft ... maður byrjar á einu og þá byrja hugmyndirnar að streyma fram um allt annað sem maður "verður" að gera.  Mér fallast bara hendur þegar ég sé þetta svona á blaði 8|  Ekki nema von maður dreymi um að komast í afslöppun og "hleðslu" til Rósu í samba, sól og sangría ;)

Annars hef ég svo sem ekki yfir neinu að kvarta.  Í fréttum hefur það verið að Noregur er besta landið að búa í eftir sem FN segir og er ég alveg sammála.  Ekki það að ég hafi svo sem búið í mörgum löndum en ég get allavega sagt það að ég er guðs lifandi fegin að hafa flutt út á sínum tíma ... ég hefði ekki komist áfallalaust í gegnum krísuna heima á Fróni.
Bara það að senda krakkana í skólann hefði sett mig útá gaddinn og ég skil ekkert í þeirri pólitík að þurfa að kaupa allar skólabækur og þess háttar í landi sem er með skólaskyldu (það eru ekki öll heimili með bolmagn til að punga út tugi þúsunda í bækur) ... og jú, það er lúxus með mötuneyti og heitann mat í hádeginu fyrir krakkana ... en það er ekki ódýrt !!!
Nú hef ég búið hérna í 5 ár og það hefur kostað mig 4 skólatöskur og nokkra blýanta.  Allar bækur, þ.e.a.s. les- verkefna- stíla og reiknisbækur, reiknivélar, liti, möppur og allt sem þarf til skólahalds skaffar skólinn ... frítt, samt eru lægri skattar í Noregi !!!
Stelpurnar fá líka fríann akstur til og frá skóla.  Allir fara í viku skólabúðir í 7. bekk og það kostar heldur ekki neitt ... og þær mæta með nesti í skólann.
Heitann mat fá svo krakkarnir milli kl.16-17 en þá borða flestir norðmenn kvöldmat þar sem vinnudagurinn hér er "normal" og flestir komnir heim á þeim tíma. Og við höfum ekki yfir neinu að kvarta þótt við séum bara með eina fyrirvinnu ...  :!:  og N.B. ég er ekki á "kommununni" né neinum bótum frá einum né neinum ... við höfum það fínt á einni fyrirvinnu. 
Að ég tali nú ekki um heilsuþjónustuna.  Ég hef ekki ennþá borgað krónu í tannlækningar fyrir krakkana ... ekki heldur þegar Ester braut framtönnina en hún hefur þurft að fara 3x til að fá nýja framtönn.  Stjúpsonur minn fékk spangir og fyrir það þarf að borga smámuni miðað við Ísland.  Tannlæknaþjónusta hérna er frí þar til þú verður 18 ára ...

En jæja, núna þarf ég að setja í vél og fara að huga að mat fyrir stelpurnar en þær koma eflaust þreyttar heim í dag.  Þessa vikuna er útikennsla þar sem 5.-7. bekkur hjólar út í skóg og lærir skyndihjálp ofl. til að komast af í náttúrunni.  Á föstudaginn er svo langur göngutúr uppí skóginn og þar verður slegið upp báli og flottheitum :haha:  Spennandi vika hjá heimasætunum :haha:

Eigiði góðan dag kæru vinir og verið góð við náungann.

» 16 hafa sagt sína skoðun

28.09.2009 11:33:11 / Daisy

Allt fyrir dygga lesendur ;-)

Jæja Ròsa mìn, þà er svarti liturinn horfinn ;)  Vona að lesturinn gangi betur fyrir sig nùna :haha:

Ì dag er það tòmlegt ì kotinu, kannski ekki svo tòmlegt þvì èg er viss um að èg drap 1411 hùsflugur með töfrasprotanum mìnum à meðan èg talaði við Helguna àðan en samt tòmlegt þvì heimasæturnar skruppu ì vikuferð til Ìslands ì gær og eiginmaðurinn er ì vinnunni.  Mìn fòr þvì à fætur à mjög svo òkristilegum tìma (06:00) og skutlaðist ì bakarìið til að heilsa upp à fòlkið og fà mèr kaffi með bakaranum :haha:

Undanfarna daga er ég búin að hugsa mikið til 3 ungra barna sem misstu móður sínu í miklum harmleik í síðustu viku þegar faðir þeirra (geðsjúkur) drap konu sína.  Það sorglega er að undanfarið hefur geðheilsu mannsins hrakað allverulega og deginum fyrir morðið hafði hann ásamt vinum sínum og vandamönnum farið á geðdeild og óskað eftir innlögn þar sem hann var ekki í jafnvægi og vildi hann reyna að fá hjálp ... en hann var í staðinn sendur heim ... síðar þá nótt hringdi hann sjálfur í lögregluna og tilkynnti andlát konu sinnar ...  Mann siktet for drap ...   aumingja börnin, móðir þeirra drepin og pabbinn er gerandinn !!!

Já, það er ekki allt ok í kýrhausnum . !!! :$  en jæja, verð að finna mér eitthvað gáfulegt að gera .... þrífa eða eitthvað annað gáfulegt :lol:

Later my friends .... og endilega vera dugleg að kvitta elskurnar mínar :haha:


» 17 hafa sagt sína skoðun

22.09.2009 13:20:05 / Daisy

Bráðum koma blessuð jólin ...

Já, jólin hafa verið ofarlega í huga mér síðustu daga.  Kannski vegna þess að hér verður fjölmennt í sveitinni en mamma og pabbi koma ásamt frumburðinum þannig að við verðum með uppruna okkar og afkomendur þessi jól :haha:  Hlakka mikið til  :haha:
Ég er meira að segja næstum því búinn að gera jólagjafalistann og er nú þegar byrjuð að versla inn ... og búa til ;)  Kannski sauma ég leðurtösku fyrir Elvu mágkonu hehe :lol:

Og í ár hef ég heitið sjálfri mér því að setjast niður og HANDSKRIFA jólakortin en ég hef verið skammarlega léleg undanfarin ár í þeirri deild og skammast mín óendalega mikið fyrir jólin 2006 en það var árið sem Erik fermdist.  Við stóðum í flutningum, tölvan hjá tante ljósmyndara krassaði sem þýddi að allar fermingarmyndirnar gufuðu upp ... og ég átti því engar myndir til að láta prenta í jólakort :cry:  En svona hlutir gerast og ekki getur maður sest niður og grenjað yfir öllu því sem miður fer ... þá er ég hrædd um að næsta alda sem riði yfir mannkynið væri táraflóð :$

Að lokum ... þið sem viljið fá persónuleg og handskrifuð jólakort frá mér og minni fallegu fjölskyldu eru vinsamlegast beðin um að kvitta fyrir innlitið ;)

» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 141361
Leitarbox