La vita e'Bella i Happyvalley

Daisy

21.03.2005 12:34:18 / Daisy

Páskafrí ...

Föstudagurinn 18. mars 2005:  Krakkarnir fóru til Íslands og Helga kom í helgarheimsókn ... Basicly ... Helga kom, Helga var að fara ...
FRÁBÆR HELGI ... og NO COMMENTS um hana á bloggið ;)

ahhhhh ..... :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2005 11:49:14 / Daisy

Arfurinn minn ...

... er öfund fyrir marga :D

Frá ömmu erfði ég mína stórkostlegu hæfileiga við saumavélina ...
     (langar samt líka í söngröddina hennar ... mikill vill meira ;))
Frá afa óbilandi hugrekki til að takast á við hvað sem er ...
Frá mömmu útsjónarsemina og kokkahæfileikana
     (þarf samt ennþá uppsk. fyrir bakstur)
Frá pabba tón- og myndlistina ...
Já og frá Sollu langömmu nefið fyrir romminu,
     (og þá er ég að tala um rommdropana í kökukrem ... don't get me wrong ;))
Og frá öllum fékk ég boogieið í fæturna ...

Alveg er ég stórkostleg :haha:

Og af því að ég er svo roooooooosalega klár þá ætla ég að setja mínar eigin tilraunir í eldhúsinu hingað inná síðurnar jafnóðum og ég er búin að testa þær á Stefáni ;)

Hope you all enjoy and I love you all.  Kveðja frá sólinni í Drammen 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2005 08:01:29 / Daisy

Stefán Þór Jóhannsson

Ég má til með að segja ykkur aðeins frá félaga mínum honum Stefáni. 
Ég veit ekki hvar ég væri ef hann hefði ekki gefið sig á tal við mig fyrir utan Rema 1000 þegar hann heyrði okkur Elenu tala saman á íslensku.  Þessi drengur er algjör perla og 100% vinur vina sinna. 
Frá því að ég kynntist honum hefur hann alltaf verið tilbúinn til að hjálpa til með hvað sem er og hann er einn af þeim skemmtilegustu sem ég hef eldað fyrir.  Það er ekkert smá gaman að bjóða mönnum eins og honum í mat.  Alveg sama hvað á borð er borið þá tekur hann hraustlega til matar síns og maður lifir lengi á hrósinu sem fylgir undantekningalaust ... ekki laust við að maður var farin að hugsa að kannski ætti maður bara að skella sér í kokkinn, eldhúsegóið fer alltaf þvílíkt á flug þegar hann er hjá mér.  En eitt má þó betur fara hjá þessarri perlu, enginn er jú gallalaus ...
Hann er byrjaður að reykja aftur ... :evil:   Skil ekki alveg hvað hann er að fara með það og ég hef svo sem ekkert legið á skoðunum mínum varðandi þessa vitleysu en svona er þetta bara ... Ég ræð víst minnstu um þetta :$ Hann heldur þó allavega með United ;)  Svo erum við saman í íslendingafélaginu en það má eiginlega segja að ef hans nyti ekki við þá hefði félagið sennilega verið lagt niður um jólin en hann sá til þess að svo yrði ekki. 

Koz og klem til Stefáns.  Þú færð hrós dagsins fyrir að vera þú ... yndislegur :haha:
Við eigum án efa eftir að eiga fullt af skemmtilegum stundum saman hérna í Drammen.

P.S. Næstum búin að gleyma því að gefa poolurum líka smá hrós.  Góður leikur hjá þeim í gær (sá reyndar bara brot og brot) en þeir unnu og eru því komir áfram í evrópukeppninni.  Til lukku til ykkar og þá helst til Helgu og Benna  8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.03.2005 08:15:26 / Daisy

Styttist í páskana :-)

Og ég hlakka geðveikt til :D Rosalega verður gaman hjá mér ...
Ég fæ meira að segja páskaegg að heiman ... vantar bara eitthvern til að fela mitt þar sem krakkarnir mínir verða heima hjá pabba sínum um páskana.
Finnum eitthvað útúr því ;)

Hérna er eitthver svaka gönguskíðahátíð í dag.  Búið er að keyra tugi vörubílahlassa niðrí bæ af snjó þar sem búin var til skíðagöngubraut.  Veit reyndar rosalega lítið um þetta þar sem ég er ekkert voða mikið fyrir gönguskíði en mér var víst sagt að ég yrði að mæta svo þangað ætlum við stelpurnar að arka um leið og þær koma heim úr skólanum í dag.  Erik er reyndar á leiðinni þangað núna þar sem allir í skólanum hans áttu að mæta í skólann í morgun en í staðinn fyrir kennslu fara þau öll í göngutúr niðrí bæ að fylgjast með. 

En að allt öðru ... Í mínu einfalda sakleysi hélt ég að ég væri hörkusöngvari (enda mamma og pabbi voða dugleg að segja mér hvað ég er æðisleg ... kannski ekki alveg að marka þau 8)) en í gær komst ég að allt annarri niðurstöðu.  Ég fór og keypti diskó karókí fyrir stelpurnar enda hafa þær með eindæmum gaman af að troða upp við öll tækifæri og enginn gestur sleppur við a.m.k. 2 danssýningar og 2 karókílög ... Nema hvað ... ég reyndi við Y.M.C.A og I will survive og komst að því að ég sukka big time í karókí ... :evil:
Ég held að ég þurfi bara stórt svið og life band með mér :haha:

Vonandi sé ég ykkur flest á fyrstu stórtónleikunum mínum ...
Staður og stund auglýst síðar :P


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.03.2005 14:56:09 / Daisy

Fallegt ljóð um fallega konu :-)

ég er fín
ég er góð
ég er með fallegt blóð
ég er ljúf
ég er sæt
allt að því æt

Þetta er eftir vinkonu mína um vinkonu mína ... hana sjálfa  ;)
Hún er bara bestust og sætust ... flottustu og fínust ... :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.03.2005 13:16:58 / Daisy

Íris frænka er TVÍTUG í dag :-)

Til hamingju frænka :D  Þú ert yndisleg.  Hafðu það gott í dag og láttu dekra við þig ;)

Afmælisbarn dagsins: Þú ert heillandi og átt þar af leiðandi gott með að laða fólk að þér. Þú ert líka sjálfstæð í hugsun og manneskja sem fer sínar eigin leiðir. Þú nýtur oft mikilla vinsælda en kýst stundum að beita þér bakvið tjöldin.


Hvað er það með mig og bíómyndir ... eitthvern veginn hverf ég úr veruleikanum og verð hluti af atburðarrás bíómynda sem gerir það að verkum að enginn karlmaður hefur boðið mér í bíó oftar en einu sinni  :$  ég fer alltaf að grenja  :cry:
Í gær bauð Stefán mér í bíó (sennilega í fyrsta og síðasta skiptið því ég endaði í tárum) að sjá myndina "Million dollar baby" með Clint Eastwood, Morgan Freeman og Hilary Swank.  Frábær mynd sem pabbi og aðrir áhugamenn um hnefaleika, kærleik og drama meiga ekki láta framhjá sér fara.  Við vissum ekkert hvaða mynd við vorum að fara að sjá svo hún kom skemmtilega á óvart. 
Ég mæli tvímælalaust með þessarri mynd.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2005 15:16:44 / Daisy

Knockoutið hún Ásdís ...

á afmæli í dag, gratulerer med dagen elsku frænka :haha:
Ég var að tala við hana áðan og pæjan er á leiðinni í danstíma í kvöld, fyrst salsa og svo beint í swing.  Hún er alveg að meika það pæjan litla ;)

Afmælisbarn dagsins: Þú er viðkvæm, umhyggjusöm og gefandi persóna í samskiptum sem vill fá hefðbundna útrás fyrir tilfinningar sínar. Þú færð mikið út úr því að koma öðrum til hjálpar. Jafnframt ertu fljót að læra. Þú ert einstaklega dul og sjálfstæð manneskja.

Og Rikki minn litli rófurass ... hann var að kaupa sér peysu fyrir afmælispeninginn sinn og viti menn.  Hann kom heim þvílíkt ánægður ... kominn í M (medium) peysu 8)
Stór strákur litla dúllan mín.  Hann er farinn að hlakka rosalega til að fara til Íslands um páskana.  Það verður nóg að gera hjá honum, fyrrverandi tengdadóttir mín var að bjóða honum í ferminguna sína svo á að heimsækja Aðalstein og Anton og taka með þeim lagið ... Anton á trommum, Steini á gítar og Erik Örn með mækinn 8)
Ekki öfunda ég Helgu mína þá.  Svo er hann víst búinn að panta bæði páskaegg og páskagjöf frá ömmu og afa í Hafnarfirði ... og svo vill hann meira og meira ...
Tipical teenager :klikk:

En jæja, vinnan kallar.   Vi snakkes ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.03.2005 22:53:50 / Daisy

Hann á afmæli í dag ... :-)

Litli bróðir minn hann Malli litli er 29 ára í dag ... alveg að verða "dirty" ;)

Til hamingju elskan ... hlakka til að fá ykkur í heimsókn í maí. 

Annars er ég að hugsa um að leita mér áfallahjálpar eftir helgina.
Ég fékk þær Oslóarsystur í heimsókn til mín á föstudaginn og guð minn góður  ...
Þær eru allt of viljugar að fræða mig um hluti sem ég hef akkurat ENGANN áhuga á að vita :$  Hluti sem eru í raun mannskemmandi fyrir siðsama unga stúlku eins og mig 8)
Við borðuðum góðann mat (auðvitað ... ég eldaði ;)) fórum síðan í göngutúr yfir brúnna til Hildu og Dan en þar tók við hin fræðandi sögustund ...
Á heimleiðinni litum við aðeins inná Unique og tókum smá snúning og það var alveg frábært að sjá hvað hún Ásdís frænka mín sogaði að sér hvern einasta karlmann á staðnum.  Það var ekki kjaftur þarna inni sem reyndi ekki við hana ... og aldrei þessu vant fengum við tante Heiðbrá akkurat enga athygli frá hinu kyninu :evil:
Bömmer ... en það styttist í páskana og þá skellir maður sér kannski í brekkurnar og blikkar skíðastrákana, þeir eru svo hraustlegir og sætir :haha:

En jæja, komið að kúrustund ... góða nótt elskurnar, ég ætla að skríða uppí og láta mig dreyma um þessa fjóra eða svo sem eru ekki búnir að reyna við móðursystur mína ... kannski hef ég séns í þá :!:  Lov'ya all


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.03.2005 09:15:52 / Daisy

Klaufinn ég ...

Næstum búin að gleyma því að Bóbó og Pétur eiga afmæli í dag 8|

Til hamingju með daginn elsku Bóbó okkar og hugsaðu nú vel um hann stóra bróður þinn þegar hann kemur heim á morgun ... ég vill fá hann hingað aftur í topp formi ;)

Og elsku Pétur okkar ... loksins 15 ára 8)  töffarinn litli (ég má alveg segja svona :haha:)  Farðu nú varlega í stelpurnar og láttu pabba þinn EKKI gefa þér ráð þegar kemur að kvennamálum ... talaðu bara við mömmu þína eða mig ;)
Annars er nú bara best að halda sig við golfkylfuna og láta stelpurnar eiga sig þar til þú verður 28 ára eða svo ... :klikk:

Love you guys og til lukku með daginn.

Afmælisbarn dagsins: Þú hefur góða frásagnargáfu og hæfileika á sviði sjónrænnar skynjunar. Einnig áttu gott með að sjá heildarmyndina. Undirbúningur er þér mikilvægur en snýst stundum upp í fullkomnunaráráttu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2005 08:02:06 / Daisy

Ég styð Siv og vinkonur hennar ...

"Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, og þrír aðrir þingmenn hafa lagt fram frumvarp um algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum. Það sama á við þjónustusvæði utanhúss, séu þau undir föstu eða færanlegu þaki. Meðflutningsmenn Sivjar eru Jónína Bjartmarz úr sama flokki,  Ásta R. Jóhannesdóttir Samfylkingunni og Þuríður Backman úr Vinstri grænum. Engin úr Frjálslynda flokknum eða Sjálfstæðisflokknum stendur að frumvarpinu."

Gladdi mig mikið að lesa þetta og vona ég að þetta verði að lögum.
Hérna í Noregi er búið að vera algert reykingabann á veitinga- og skemmtistöðum í u.þ.b. ár, allavegna síðan ég flutti hingað, og það er ekki hægt að bera það saman við reykingarstybbuna sem mætir manni á skemmtistöðunum heima ... að ég tali nú ekki um á veitingastöðum þar sem eitthverju brilliant idioti datt í hug að það væri hægt að reykja við eitt borðið en banna reykingar við hitt ... eins og reykurinn og viðbjóðurinn haldi sig eingöngu við þann sem strompar :evil:
Það er þvílíkur lúxus að geta farið út að dansa og skemmta sér og þurfa ekki að hafa áhyggjur af reykingargötum á fötunum því sumir halda víst ekki takti nema með rettuna í annarri og glasið í hinni ... (þvílíkur misskilningur).  Og lyktin af fötunum ... maður minn og annar ... þvílíkur viðbjóður.  Losum okkur við þennann viðbjóð hið snarasta.
Styðjum reykingarbann á veitinga- og skemmtistöðum ... út með reykinn.

Tökum norðmennina okkur til fyrirmyndar.  Hérna eru góð og upphituð svæði við flest alla skemmti- og veitingastaði fyrir þá sem þurfa að reykja á meðan við hin dönsum og snæðum 8)  Og allir fara heim glaðir og vel lyktandi ...

Love you all :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun


Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 51 dögum
Þorrablót í Drammen
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 99875
Leitarbox