La vita e'Bella i Happyvalley

Daisy

31.05.2005 17:35:10 / Daisy

kjærlighet

Han går ikke mere til henne
og nynner en øm melodi:
Han går, men er nødt til å vende,
for hun har jo gjort det forbi ...

Nu går han alene og fabler
om alt, som så vidt var begynt,
mens månen i kveldsjøen stabler
en søyle av skinnende mynt.

Og minnene stormer hans sanser ...
men himmel, hvor svermer han hen?
Han går ikke dit, hvor hun danser,
han går, men han vender igjen.

Han hører hvor fløytene låter,
der spilles en sår melodi ...
han nynner den med til han gråter ...
så vandrer han huset forbi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.05.2005 09:12:00 / Daisy

ÁFRAM FYLKIR :-)

Loksins eitthvað að gerast hjá árbæjarliðinu, tóku skagamenn svona líka rækilega í rassgatið  ;)  Áfram FYLKIR :D

En ein LÍTIL pæling .......

Hvað gerir þú þegar þú heyrir rógburð eða einkennilegar sögur um vini þína? 
Trúir þú sögumanninum í blindni af því að sagan er svo krassandi!
Tekur þú þátt í sögustund, samþykkir allt og gerir söguna að rógburði!
Hættir að hlusta og stoppar viðkomadi sögumann!
Eða hlustar án þess að samþykkja,  ferð síðan beint í vin þinn sem talað var um til að athuga sannleiksgildi sögunnar!

Mjög athyglisvert, því mannlegt eðli er með ólíkindum á stundum.  Pæliði aðeins í þessu, hvernig manneskja vilt þú vera!

Pesónulega, ef ég þekkti vel þann sem talað er um þá myndi ég stoppa söguna og láta vin minn vita hvernig talað er um hann ... en það er bara ég ... hvernig brygðist þú við:!::!::!:

Vertu þú sjálfur, taktu eigin ákvarðanir byggðar á þínum kynnum við fólk.  Ekki detta í þann skítuga drullupoll að mynda þér skoðanir á fólki miðað við annarra manna kynni eða skoðanir ...  Love you all og verum góð við hvort annað því WHAT GOES AROUND, COMES AROUND 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.05.2005 16:19:23 / Daisy

snökkt ... :(

Var að koma frá Osló og það var hundleiðinlegt ... ekkert gaman að þvælast blankur og atvinnulaus um ...
Verð að fara að fá vinnu áður en ég klepra niður úr leiðindum.  Í fyrramálið ætla ég að dreifa fleiri CV-um og leggjast á bæn ... og þið hin sem óskið mér alls hins besta, krossleggið fingurna fyrir mig ... I really need it.

Adjø elskurnar :|   ...  æ ókey ... ég skal reyna að smæla pínu :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2005 11:46:17 / Daisy

7+8=15 og 2x15=30 ... nógu nálægt 35 :-/

Núna sit ég bara í sloppnum og hef það huggó ... ég elska sunnudaga.
Gera ekkert nema slappa af og njóta þess að vera til.  Vera vakin af tveimum litlum ljósálfum sem vakna allt of snemma um helgar og byrja að reyna að stinga undan manni ... my own two daughters  :(  Þær voru svo agalegar í morgun, vildu báðar eiga Bjørn sem sinn kærasta (þetta er hörku samkeppni á heimilinu :$) og ég sagði þá við þær að ná sér í einn á sínum aldri ... og þá stóð ekki á svari hjá þeirri eldri ...
"Sko mamma, 8 (ára) + 7 (ára) er 15 og 2 x 15 er 30 og hann er 35 svo það er allt í lagi, við tvær 2x erum 30 og það passar fyrir Bjørn ikke sant ;)" hann bara hló þessi elska, orðlaus yfir allri þessarri aðdáun og athygli :D men det er bare sånn ;)
En nú er hann farinn heim þessi elska til að læra fyrir próf á morgun og ég ætla að hafa það huggó í dag, horfa á imbann og taka til í skápunum, tína út föt fyrir rauða krossinn, rosa gaman ;)

Heyrðu já, så er det Oslo i morgen :D kanskje møter jeg Hrafnhildi eller tante Heiðbrá men i hvertfall møter jeg Bjørn og folk fra Orkuveitunni, og jeg har også lyst på å se Vigelandsparken ;)

Men nå må jeg gå, vi snakkes senere 8)
Lov'ya all and POWER TO THE PEOPLE :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.05.2005 07:46:07 / Daisy

Enn einni vikunni að ljúka og komin er helgi :-)

Og ég ætla að njóta hennar í botn ...

Ester var með stelpurnar í bekknum í afmæliskaffi í gær og það var nú ekkert lítið stuð maður minn og annar.  2 dömurnar urðu svo heillaðar af stóra bróður að þær gátu ekki séð hann í friði ;) Og nú er það búið ... öll afmælin þetta árið búin :D
Það er nú pínu öðruvísi að baka og græja afmælin hérna úti þar sem ég hef enga samstarfsfélaga og vini til að borða alla afgangana ... það er á svona stundum sem ég sakna Eirhöfðans alveg gríðarlega :cry:  En nú er enginn Eirhöfði, núna eru allir komnir á Bæjar- og Réttarhálsinn.  Vona bara að öllum líði vel þar og að góði, skemmtilegi mórallinn sé ennþá til staðar.  Æ hvað ég sakna ykkar :(

En lífið heldur áfram og núna er ég að gera mitt besta í að koma mér í launað starf í Drammen, ekki get ég lifað á ástinni einni saman ;)  en mikið rosalega er yndislegt að vera ástfangin :D Þið sem hafið séð myndina um hann Guido vitið hvað ég tala um ... sönn, óeigingjörn og einlæg ást ... La Vita E Bella ... take a look ;)

Og að lokum þá verð ég óska Helgu, Benna, Herði og öðrum poolörum til hamingju með titilinn og ég verð að segja að þetta kom virkilega á óvart.  Sá reyndra ekki leikinn (og sé ekkert eftir því) en ég hef heyrt og lesið að þetta hafi verið rosaleikur svo enn og aftur, til hamingju elskurnar :haha:
P.S. Og by the way ... hvað er að gerast í árbænum ... Fylkismenn :!:


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2005 11:55:03 / Daisy

Smekkfólk :-)

GEFST UPP Á ÞESSARRI MYND EN ÞAÐ ER ROOOOOSA FLOTT HJÁ ÞEIM.

Sjáiði bara hvað það er flott hjá litla bróður mínum og mágkonu ... mætti halda að þau hefðu fengið tips frá henni litlu mér ;)  Þau voru að mála og kaupa sér ný ljós í stofuna ... glæsilegt og ég hlakka til að koma til þeirra aftur.  Yndisleg heim að sækja :D

Belive it or not en hérna voru þvílíkar þrumur áðan og þeim fylgdi þvílíkt skýfall ... en þetta varði bara eitt augnablik eða svo ... passaði akkurat, ég var nýbúin að hengja út þvottinn minn, lætin byrjuðu ... ég út aftur og reif inn þvottin, rennblottnaði auðvitað ... og viti menn .................. þá stytti upp :$  ein ferlega seinheppin 8| ....

Og já ... viti menn ... ég er að fá gesti í sumar :haha:
Helga og Lára ætla að koma saman í skemmtiferð til Drammen og aldrei að vita nema þær taki fleiri með sér ... nóg pláss stelpur og nóg að gera ;)

En nú verð ég að skjótast í bankann fljótlega, vona bara að ég komist þurr fram og tilbaka, annars verð ég pirruð :evil:  Love to the world 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2005 11:33:56 / Daisy

Ný vika elskurnar ...

nýtt fólk, nýjar minningar, nýr lærdómur ... og vonandi ný vinna ;)
Bjartsýni og jákvæðni borgar sig og skilar sér í betri lífsgleði ... ikke sant :haha:

Þetta er búin að vera yndisleg helgi, burtséð frá því að Selma komst ekki í aðalkeppnina og norðmenn unnu ekki ... en það var svo sem í lagi fyrir utan það að lagið sem vann var hræðilegt ... úfffff ... danska lagið náði til mín, sem og ísraelska, rúmenska og fleiri ... en ekki Grikkland :evil:  en það þýðir víst lítið að leggjast í bömmer, frekar að brosa framan í heiminn og halda áfram ... :lol:
(God hvað ég er eitthvað hummmmmm í dag :$)

Laugardagurinn var afmælisdagurinn hans Kalla bróður.  Litli skæruliðinn varð 35 ára og nálgast óðum aldur löglegs gamalmennis :klikk: en litla greyið mitt var fjarri góðu gamni siglandi um aleinn eitthvers staðar lengst norður í rassgati :cry:
En hérna í Drammen var gaman.  Hilda var með Eurovisiondinnerparty og þar sem sjónvarpið hennar er með sjálfstæðum pissupásum ákváðum við að rífa það úr sambandi og færa sjónvarpið hans Tómasar inní stofu, með því móti gátum við ákveðið okkar pissupásur sjálf og horft á keppnina í friði ... og þetta er í fyrsta skipti sem ég horfi á eurovision í 14" sjónvarpi ... efast samt um að Gríska lagið hefði hljómað eitthvað betur í sjálfstæðu 28" sjónvarpi  8|  Annars fannst mér þó nokkuð um góð lög í keppninni í ár og gaman að horfa á hana ... sérstaklega sitjandi í fanginu á norska Björninum mínum ;)  hljómaði allt miklu betur og allt svo æðislegt :haha:

Sunnudagurinn rann svo upp bjartur og fagur og við vorum vakin upp af litlu iðandi afmælisbarni sem langaði í pakka ... strax takk :haha: 
Svo mamma "galdraði" undan rúminu pakka fyrir lítið 7ára stjörnuljós, Ester Ösp.
Og mín varð ekkert lítið happy þegar umbúðirnar fengu að fjúka og í ljós kom bleikt blómaúr, meikup sett og tiger hárburstasett.  Fljótlega sá mín business úr þessu öllu saman og saman drifu þær systur sig út með teppi, borð og stóla og settu upp beauty saloon við gangstéttina þar sem þær buðu förðun og greiðslu fyrir smá aur 8)
Ekki varð úr þessu mikill gróði en frábært frumkvæði.  Klárar sjálfstæðar stelpur sem ég er að ala upp, þær verða ekki í vandræðum í framtíðinni  ;)  Eru eins og mamma sín, óháðar öðrum og sjá um sig sjálfar ;) 
Ester fékk gesti til sín í kaffi en hingað komu þær systur Heiðbrá og Ásdís ásamt Adrian.  Einnig komu Hilda, Dan, Oddrún og Aðalsteinn Kjartan svo það var margt um manninn, gott með kaffinu og mikið skraflað.  Næsta fimmtudag er hún svo búin að bjóða til sín öllum stelpunum í bekknum sínum svo þá verður stuð ... og veisla nr.2

Í dag er svo kominn mánudagur ... mikið sem bíður mín þessa vikuna en aðalmálið verður að koma sér í nýja vinnu en líka að gera eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi með hækkandi sólu.  Sumarið er komið í Drammen og sólin skín.  Krakkarnir eru búin að biðja um tusenfrid, ströndina, sömmerland i Bö og fullt annað áður en þau fara til Íslands fyrir sumarið :$ verðum bara að sjá hvað við komumst yfir núna en annars verður þetta allt saman ennþá til staðar þegar þau koma aftur út í haust.

En jæja, komin tími til að setja punktinn á þennann fyrirlestur (á ekki von á að margir hafi nennt að lesa þetta allt) en við heyrumst síðar. 
Kveðjur frá Drammen til allra sem eru með sól í hjarta 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2005 12:16:54 / Daisy

Helga mín ...

MEGA-kroppurinn á afmæli í dag :D  Gratulerer med dagen Helga mín og ég vona að þú njótir hans í botn þótt að ég sé ekki þarna til að halda uppá hann með þér ... ég skála við þig í kvöld yfir úrslitunum í Idol í kvöld ;)  Þú er æðislegust dúllan mín og ég sakna þín alveg gríííííðarlega :cry:   Love you

En að gærkveldinu ... Begga mín ... til hamingju með kippuna þína og Helga ... heilar 12 flöskur af rauðvíni ... eins gott að þú geymir eitthvað af þessu þar til ég kem á klakann ... þýðir víst lítið að biðja Beggu um að geyma eitthvað, hún er klárlega búin með sína kippu ;)  en ég er samt alls ekki sátt við að Selma hafi ekki komist áfram.  Algjör bömmer, but that´s life.  Mér fannst reyndar danska lagið alveg meiriháttar og vona að bauninn fari langt annað kvöld.  Mér fannst reyndar mörg lög þarna nokkuð góð en fullmikið af Ruslönustælingum með þessar trommur út um allt ...... eru allir svona hugmyndasnauðir eða hvað ..... og hvað var þetta með Portúgal ... gal, gal ... algjörlega gal þessir jólasveinar að senda þetta gól ... algjör hljóðmengun.
En það þýðir víst lítið að kvarta ... bara bíta á jaxlinn og blóta í hljóði :evil:

Love you guys og spjöllum síðar.

P.S. Ég tapaði víst þessu krassandi veðmáli mínu og þarf víst að hummmmm núna 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.05.2005 08:48:37 / Daisy

Adrian er 19 ára í dag

Til hamingju með það kæri frændi og til hamingju með soninn tante :D

Það er yndislegt veður hérna í dag, sól, hiti og pínu gjóla.  En það þýðir lítið að skella sér í sólbað því ég verð víst að finna mér vinnu ... og það fyrr en síðar.  Í dag verður því setið yfir tölvunni og sett saman sómasamlegt CV ... á norsku (eða ensku ef ég gefst upp á norskunni :S)  Ætti ég þá ekki að hætta að blaðra hérna og snúa mér að því :$ 

En fyrst er það Eurovision undankeppnin í kvöld.  Það held ég að hún Selma eigi eftir að rúlla þessu upp en ég er ekki eins bjartsýn með norska framlagði ... heillaði mig ekki alveg ... en við sjáum hvað skeður.  Ég er með rosa krassandi veðmál í gangi við Björninn minn svo það er eins gott að Selma mín standi sig og verði í einu af þremur efstu sætunum 8)  Svo eru úrslitin í Idol hérna annaðkvöld og ég vann veðmál við Stefán þar, minn þátttakandi komst í úrslitin ... það var málið :haha:
Þrír næstu dagar eru bara heljar söngvarakeppnisdagar ...
í kvöld undankeppnin í Eurovision
annað kvöld úrslitin í norsku Idol keppninni
og laugardagskvöldið er Eurovision kvöld ............ Bara gaman  :D

Bestu kveðjur heim og góða skemmtun yfir undankeppninni í kvöld ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.05.2005 11:08:45 / Daisy

17. maí, þjóðhátíðardagur norðmanna

Í gær fögnuðum við þjóðhátíðardegi norðmanna og það var alveg meiriháttar opplivelse  :haha:
Við fórum öll í skrúðgönguna en allir skólarnir hérna taka þátt í henni + lúðrasveit frá hverjum skóla.  Sennilega verið um 15 -  20 skólar þarna og gangan var 2 tíma á leiðinni.  Mér leið eins og stoltum þjóðhöfðingja enda var þétt staðið, beggja vegna göngunnar og húrrað og veifað .... og 97% fólksins voru í þjóðhátíðarbúningum.  Ferlega hátíðlegt :D
Eftir gönguna héldum við síðan í tívolíið þar sem við skemmtum okkur öll æðislega áður en heim var haldið til að taka á móti Ásdísi, Heiðbrá og ömmu í grillveislu. 
Ég missti reyndar af RUSS-göngunni svo ég verð bara að vera viss um að taka hana á næsta ári ;)  en þetta var alveg meiriháttar dagur og ferlega hátíðlegur. 
Aldrei upplifað 17. júní svona heima, þar snýst allt um kraðak af fólki og peningaplokk ...

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 14:55:09 / Daisy

Fullt af fréttum ... ;-)

Mætt á boggið aftur ... gaman að sjá ykkur öll ;)
Og núna hef ég fullt af fréttum handa ykkur elskurnar :haha:

1.  Fullt af fermningum búnar að vera hérna hjá okkur í Noregi.  Tómas frændi fermdist 5. maí og við skelltum okkur í frábæra veislu hjá frænda sem haldin var í Osló.  Þann 8. maí fórum við síðan vestur til að mæta í ferminguna hjá Palla Kallasyni sem tókst með eindæmum vel, mikill matur, tertur og alles og svo í gær, þann 15. maí fórum við til Ski en þar var Unnur Tótudóttir að fermast og að venju var veisluborðið hjá Tótu frænku drekkhlaðið kræsingum.  Eftir þá veislu keyrði Guðjón okkur heim með bæjarrúnti og ísstoppi í Dröbak á nýju drossíunni sinni.

2.  Ég er búin að vera með fullt af gestum ... Mamma, pabbi, Marinó bróðir og Elva mágkona komu til að mæta í fermingarnar hjá Tómasi og palla.  Amma kom líka ... og er enn, og fór með okkur í allar fermingarnar og svo mættu Dís, Elísa og Ingi Hrafn til að mæta í ferminguna hans Tómasar.  Rosalega gaman að fá allt þetta fólk í heimsókn og að venju eru mínar dyr opnar svo endilega allir að skella sér í heimsókn til Drammen ...... bara gaman :haha:

3.  Síðasta helgi var líka ferlega busy ... á  föstudagskvöldinu var innfluttningsparty hjá félögum mínum Ole og Stefáni, geðveikt gaman.  Ekta piparsveinahús, skjávarpi og breiðtjald, tölvan tengd við og um kvöldið dundu músikmyndböndin í botni á skjánum, diskóljós í takt og reykur 8)  já og svo skelltu þeir upp sundlaug á pallinum fyrir þá sem vildu baða sig.  Á laugardagskvöldinu bauð svo Róslind til veislu en hún var að fagna fertugsafmælinu sínu.  Rosa flott veisla, grillað svín, salat og kartöflur skolað niður með rauðvíni og hvítvíni ... svo var tjúnað upp í græjunum og 25 brjálaðar stelpur rifu sig á gólfið til að dansa línudansa og boogie ;) en ég var nú ekki lengi þar sem Ester varð eitthvað bumbult svo ég dreif mig bara heim.

4.  Sviðaveislan sem  íslenska - norska vennskapsforening hélt þann 30. apríl heppnaðist alveg rosalega vel og það var alveg geggjað gaman.  Mikið borðað og dansað ... já og ég reyndi nú líka að syngja eitthvað en það var kannski ekki alveg nógu heppilegt þar sem ég var búin að vera raddlaus og með hálsbólgu í 3 vikur :| en maður hitti fullt af nýju fólki og skemmti mér alveg konunglega.

5.  Já og núna er ég komin á fullt í atvinnuleit þar sem verkefni mínu hjá Orkuveitunni er lokið, sem þýðir að ég er hætt við að koma heim í sumar :whut:  í staðinn ætla ég að koma mér í vinnu hérna og njóta sólarinnar.  Krakkarnir fara þó heim og verða í heila 2 mánuði á Íslandinu ... weird :$ ... en þau eiga eftir að hafa það gott og skemmta sér vel.  Byrja á að fara í veiðiferð með stórfjölskyldunni minni ... allt hele klappið ætlar að veiða og svo fara þau vestur með allann aflann og verða þar fram yfir færeysku dagana en svo keyra þau á malbikið og fara til pabba síns og hans fjölskyldu. 

6.  Já og heitasta fréttin ... sexan ;)  Mín er gengin út ... loksins búin að finna þann eina rétta og sá heppni er yndislegasti, fallegasti og bestasti maður sem ég hef nokkru sinni kynnst, B.C. Westby is the man of my dreams :P   Einn galli er þó á gjöf Njarðar ... ég er í stanslausri baráttu um athygli hans við börnin mín en þau gjörsamlega sitja um hann þegar hann kemur til okkar og ég kem varla inn hæ og bæ kossi :$  weird ...
En það er samt í besta lagi því ekki gæti ég jú farið í samband með manni sem væri ekki barnakarl og næði þetta góðu sambandi við krakkana mína.  Endalaus þolinmæði sem hann sýnir við okkur öll þessi elska ... my man ;)  I´m in looove you know :P

En jæja,  þetta er gott í bili ... þið verðið að fá að melta þetta allt inn og svo held ég áfram :D  Love you all og hlakka til að heyra frá ykkur.


» 3 hafa sagt sína skoðun


Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 50 dögum
Þorrablót í Drammen
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  23  Alls: 99830
Leitarbox