La vita e'Bella i Happyvalley

Daisy

31.07.2005 20:15:40 / Daisy

Minna kynlíf fyrir þá sem hrjóta ...

Rakst á þessa skemmtilegu frétt á visi.is :haha:

Menn sem hrjóta njóta minna kynlífs en aðrir menn. Þetta eru niðurstöður nýrrar breskrar könnunar. Það liggur í hlutarins eðli að maður sem hrýtur stundar ekki kynlíf á meðan. Þessi nýja könnun sýnir hins vegar að sá hinn sami nýtur síðra kynlífs alla jafna en þeir sem ekki hrjóta. Ástæðan er fyrst og fremst sú, samkvæmt fyrrnefndri rannsókn, að tæplega 90 prósent maka þeirra sem hrjóta velja að sofa í öðru herbergi á nóttunni. En fleira kemur til. Miklar hrotur leiða oft til þess að viðkomandi er þreyttari og það eitt og sér dregur úr kynlífslöngun hans. Og síðast en ekki síst þá sýna rannsóknir að þeir sem hrjóta mikið eiga fremur við risvandamál að stríða en aðrir menn. Það skal hins vegar tekið fram að þetta á alls ekki við um alla þá sem hrjóta.

Og eftir þennann skemmtilega lestur ætla ég að drífa mig uppí því ég þarf á fætur við fyrsta hanagal á morgun því ég verð jú að mæta í vinnunna ;)

Natta elskurnar mínar og skrifiði mér eitthvað skemmtilegt sem ég get svo lesið þegar ég kem þreytt heim á morgun 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.07.2005 13:15:47 / Daisy

IDIOT - úrslit skoðanakönnunarinnar

Komin eru á hrein úrslit skoðanakönnunarinnar (vá hvað þetta er erfitt orð :$) um hver verður andlit heimsmeistarakeppninnar í IDIOT.

Hrafnhildur Helga Antonsdóttir  67%
Heiðbrá Aðalsteinsdóttir  33%

Helga mín ... þú er sigurvegarinn og verður því andlit keppninnar sem verður auglýst síðar þegar gengið hefur verið frá öllum smáatriðum varðandi auglýsingasamninga og einkarétt.  GRATULERER :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2005 11:33:13 / Daisy

Byrjuð að vinna :-)

Í dag var fyrsti norski vinnudagurinn minn ... ef hægt er að segja svoleiðis þar sem hin vinnan mín hérna var fyrir OR í gegnum netið.  En allavegna þá gekk þetta bara nokkuð vel og var meira að segja pínu skrautlegt :S
Ég mætti uppá Rosenkrantzgate um 06:45 í morgun og var fljótlega boðið í kaffi af einni sem vinnur á skrifstofunni og hún var alveg ferlega spennt fyrir að fá mig í vinnu þarna hjá þeim á skrifstofunum sem mér fannst ekkert leiðilegt að heyra (ég verð orðinn skrifstofustjóri hjá ISS í Drammen áður en ég veit af :D)  en svo um 07:00 mætti Anna Grete (flokkstýran mín) og við fórum þá allar út "í smók" (pabbi, þær reyktu, ég horfði bara á ;)) þar til kominn var tími á okkur að fara á nýja vinnustaðinn minn ... LINDORFF í Royken.  Þetta er þokkalega erfið vinna en ekkert mál fyrir alvöru kvenmann eins og mig :haha:   En það var eitt þokkalega skemmtilegt sem ég uppgötvaði í morgun.  Við þrjár, ég, Anna Grete og Jeanett (sú sem ég tek við af) stóðum á ganginum og vorum að spjalla saman ... um Ísland, þegar ein sem vinnur á skrifstofunum þarna gekk framhjá okkur og var kynnt fyrir mér ... nema hvað ... hún segir okkur að það sé önnur íslensk dama að vinna þarna og fer með okkur til að kynna mig fyrir henni ... og viti menn ... er ekki bara Róslind að vinna hjá Lindorff en svo skemmtilega vill til að við erum saman í saumaklúbb ;) Ótrúlega lítill heimur ... og einnig skemmtileg tilviljun að Helga og Róslind voru að vinna saman hjá Heklu áður en Róslind pakkaði saman og flutti í sæluna til Noregs 8)
Já og svo var eitt ferlega skondið sem gerðist ... og á örugglega eftir að gerast nokkuð oft.  Þannig var að ég var að þrífa og pússa stálhurð inná einn ganginn sem ég þríf nema hvað ... allt í einu er hurðin rifin upp og inn arkar ungur og myndarlegur maður sem er að vinna þarna og minni bregður heldur betur og all þokkalega við þegar hurðin hverfur undan höndum mínum ... og tuskunni :$ ég "andvarpaði" hátt en hann sprakk úr hlátri yfir mínum viðbrögðum :evil:  hláturinn minn kom á eftir sjokkinu :lol:  bara fyndið
Og nú er ég komin heim ... og þarf eiginlega að fara að skúra hérna líka ... nenni því bara ekki alveg strax ... á morgun segir sá lati  ;)  og þetta er sennilega gallinn við starfið ... hver nennir að gera "vinnuna" sína þegar heim er komið ... :$

Og núna eru bara 6 dagar í að ég verði "heil" aftur en þá koma englarnir hennar mömmu sinnar heim og fylla húsið af lífi og gleði aftur :D  Ohhhh hvað ég hlakka til :haha:  Jeg er så heldig å ha de 3 mest fantastiske ungene i hele verden ;)

Og aðeins heim í lokin.  EIGIÐI FRÁBÆRA VERSLUNNARMANNAHELGI en gangið varlega um gleðinnar dyr og gerið ekkert sem ég myndi ekki gera (engin komment óskast á þetta frá sumum ;)) ADJØ


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.07.2005 11:13:57 / Daisy

ENDELIG ... ;-)

MÍN ER BARA LOOOOOOKSINS KOMIN AF STAÐ OG Á FULLT FLUG ... HEIA NORGE :haha:

Nå har jeg endelig fått jobb hos ISS, det er bare deltid men det er jo jobb ikke sant ... og muligheter om mere :haha:  Jeg er sååååå heldig :-D

Tante Heiðbrá var hjá mér í nótt og fór með mér áðan til ISS Drammen þar sem við spjölluðum við ráðningarfulltrúann sem réði mig á staðnum og ég á að byrja á föstudagsmorguninn.  Þetta eru reyndar bara 4,5 tímar á dag en möguleiki á fleiri verkum ... og ég er búin að komast að því eftir að hafa hlustað á Heiðbrá lýsa mér áðan að það finnast bara varla jafn fjölhæfir og hæfileikaríkir einstaklingar en yours truly ;-)
Ég get víst séð um allann andsk..... öll skrifstofuvinna er piece of cake, sem og hönnun á öllu mögulegu, mötuneytið er ekki vandamálið fyrir svona eldklárann kokk eins og mig, allt skipulag ... já og yfirmenn ... ta i vare, mín er mætt á svæðið :klikk:
En nei nei ... þetta er bara frábært og æðislegt að vera komin í vinnu aftur ...

I finally feel like a human being again ....... I´M ON THE TOP OF THE WORLD :haha:

Og nå føler jeg for å feste 8)  Ha en riktig fin dag ;-)


» 11 hafa sagt sína skoðun

25.07.2005 08:36:50 / Daisy

Allt er fertugum fært ...

er það ekki annars Steini minn ;)
Til hamingju með daginn elsku frændi.  Leiðilegt fyrir ykkur að ég missti af veislunni á laugardaginn ;) en ég frétti að þetta hefði verið frábær veisla, vel veitt og rosa stuð.  Farðu nú vel með konuna okkar og góða skemmtun í Túnis 8)

En hvernig er það með alla þessa raunveruleikaþætti.  Er endalaust hægt að koma upp með ný fórnarlömb sem láta fara illa með sig í beinni :!:
Í gær horfði ég á 3 raunveruleikaþætti á TVNorge.
Fyrst var það Ungkaren VII þar sem töffarinn Charlie lék sér að kolvitlausum, ást- og athyglissjúkum stelpum.  Ein gekk meira að segja svo langt að hún litaði hárið á sér ljóst þegar hún var búin að sjá að það voru bara dökkhærðar sendar heim ... og hún fékk að fjúka fyrir það blessuð stelpan. 
Svo var það Drømmen om Hollywood þar sem 10 stelpur keppast um það að verða frægar leikkonur.  Svo sem alveg ágætisþáttur ef maður hefur þykka skel og getur tekið harðri og miskunnlausri gagnrýni fyrir framan alþjóð ... og dómararnir þar eru allir í sama klassa og Simon í idol USA ...
Og að lokum horfði ég á  "súperstjörnukroppur á 12 vikum"  þar sem 3 ungar stúlkur í mínum stærðarflokki fóru í 12 vikna átak á J-Lo prógrammi þar sem þjálfarar J-Lo pískuðu þær áfram á sama prógrami og J-Lo er á og næringarráðgjafinn hennar sá um að þessar 3 dömur borðuðu það sama og hún með því að senda til þeirra matinn á réttum tíma.  Þetta var reyndar alveg ágætis prógram og næst verður það Beyonce.  Það er hægt að læra margt á þessum þætti.
Og svo eru það allir hinir raunveruleikaþættirnir 8|
Og maður horfir ... og hlær ... hneykslast eða fyllist viðbjóði eins og þegar maður horfir á "Ekstrem rengjøring (How clean is your house)" :^)  jakkkkkkk, þvílíkur viðbjóður. 

Og nú er ég aftur orðin ein :cry:  Það leiðilegasta við að fá gesti er að þeir eru jú gestir og þurfa alltaf að fara aftur heim ...
Kalli og Katrine lögðu í hann í gærmorgun með stefnuna á Måløy en nokkrum klukkutímum eftir að þau lögðu af stað fékk ég eftirfarandi sms ...
"Nu har bilen kokt over :( om vi får start igjen må tida vise seg.  Og nu har vi tatt opp utelekene vi hadde i bilen.  Tennis, frispi og masse mer."
"Vi er på E6, snart Otta.  Håper vi kommer oss hjem før sommeren er over.  Fan, skulle ha funnet meg type med bil ;)"  hehe ...
Aumingja þau, en þau komust á leiðarenda skömmu eftir miðnætti ... með rútunni :haha:  en bíllinn hefur verið dæmdur ónýtur og verður dreginn til Otta í dag eða á morgun og seldur í varahluti.  Ævintýralegt sumarfrí hjá þeim sem endaði með skrautlegri heimferð 8)

En jæja, nú verð ég að hætta þessu röfli og halda áfram að skoða atvinnuaugl.  Verð líka að sýsla eitt og annað áður en Oddrún og Aðalsteinn koma.
Missing you ......


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.07.2005 17:22:49 / Daisy

I´m bored ...

Í dag er akkurat 1 ár síðan krakkarnir mínir fluttu út til Noregs ... en núna eru þau á Íslandi og mamma þeirra saknar þeirra svooooooo mikið :cry:

Og mér leiðist ..... Kalli og Katrine eru inní Osló hjá systrunum, þau voru að hringja í mig til að reyna að plata mig til sín en ég ætla ekki að fara ... ætla frekar að sitja ein heima og láta mér leiðast :( (þið megið vorkenna mér núna ;)) en planið var að fara til Monicu í kvöld en það var að breytast ... hún þarf á fund svo ég ætla til hennar á morgun.

Annars er svo sem ekkert að frétta af mér þessa dagana ... er bara heima að leita að vinnu og svitna í hitanum hérna ... þetta ætlar engann endi að taka.  Mamma hringdi í mig áðan, þau voru á leiðinni á Grundarfjarðardagana ásamt bunch af öðru fólki, alltaf stuð fyrir vestan í rigningunni :haha:

Hafiði það gott í kvöld elskurnar og góða helgi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2005 19:57:05 / Daisy

Heimsmeistaramót í IDIOT

Ég er byrjuð að leggja drög að heimsmeistaramóti í IDIOT.  Lögfræðiliðið mitt er í samningaviðræðum við team fræðimanna og lögfræðinga sjónvarpsstöðvarinnar Eurosport um hvernig best er að koma þessu í framkvæmd og að koma þessu að á góðum tíma, t.d. á milli leikja í EM eða HM í fótbolta.

Komin er fram tillaga um hver verður andlit og talsmaður keppninnar en ég hafnaði því tilboði enda ekki mikið fyrir að vera frontur ... það fer mér betur að láta lítið fyrir mér fara bakvið tjöldin ... þannig að ég fékk því komið við að einvígið stendur á milli Hrafnhildar Helgu Antonsdóttur (barmfögur austfjarðarmær með munninn fyrir neðan nefið og húmorinn í lagi) og Heiðbrá Aðalsteinsdóttir (heitasti aðdáandi leiksins með geislandi fallegt bros).

Gott væri að þið tækuð þátt í skoðanakönnunni hérna til hliðar til að hjálpa okkur við þessa stóru ákvörðun :D

En að lokum aðeins að öðrum atburðum líðandi stundar.

Kalli og Katrine komu til mín í gær og ég er búin að vera rosalega dugleg að æfa mig í norsku ... en það er samt pínu tough vegna þess að þau tala allt annað tungumál þarna fyrir vestan :$ men det går bra ... jeg er så veldig flink ;)
Þau eru jafn heppin og stelpurnar þegar þær voru hérna ... brjálaður hiti maður minn og annar 8)  Við sátum saman úti á svölum til kl.04:00 í nótt að spila ... UNO ;)
og viti menn ... þau eru kurteis þarna að vestan ... leyfðu mér svoleiðis að valta yfir þau (annars er ég ekki alveg svo viss um það að Kalli hafi neitt fílað það að tapa :klikk:)

En jæja, núna verð ég að henda endi á þetta því þau vilja endilega fara út í smá göngutúr fyrir svefninn.  God natt alle og vi snakkes senere :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.07.2005 17:11:31 / Daisy

GESTIR ......

Merkilegt með gesti ... sumir kunna sig bara ekki.  Eins og t.d. tante min í Osló ... hvernig dettur henni í hug að koma hingað .... aftur og aftur til að spila en leifa mér svo AAAAAALLLLLDREI að vinna :evil:
Helga aftur á móti sat og spilaði við mig í fleiri tíma um daginn og leifði mér allllllltaf að vinna ... miklu meira gaman að spila við þig Helga mín ... kooooooodu aftur :haha:

En að öllu gríni slepptu þá er dagurinn bara búinn að vera þokkalega góður ... verslaði mér 2 pör af skóm fyrir aðeins 90,-nkr ... segiði svo að það sé dýrt að versla í Norge ;)
En það var nú ekki neitt ... Tante NAUÐSYNLEGA VANTAÐI föt enda á hún ekkert þannig að við fórum í Buskerud storsenter þar sem hún verslaði sér glæsilegann kjól og 2 toppa (enda átti hún BARA 363, vantaði 2 ;))  ekki það að ég sé neitt abbó :evil:   Og að sjálfsögðu borgaði hún minna en ekki neitt fyrir góðgætið sitt en það var bara 50% afsl. af vörunum + Xtra (prútt)afsláttur ... það er alveg milljón á mann að fara með henni í búðir 8) en þetta er náttúrulega bara snilld hvernig hún fer að því að sýna starfsfólkinu "gallana" í flíkinni :$ BARA SNILLD :haha:

Í kvöld bíður mín svo kósý kvöld hérna heima þar sem sófanum langar svoooo að faðma mig að sér og knúsa í kleinu :P
(enda er ég með eindæmum kleinuleg í laginu :cry: samt rosa sexy ;) kannski ætti ég að íhuga vel hvernig best væri nú að koma sér í form fyrir jólin ... ef ég hugsa rooooosa sterkt og mikið um það skildi það þá gerast ... eða verð ég að fara að neita mér um eitt og annað og fara að hreyfa mig :^))  úfffff ...
En er kleinuleg og kringlótt ekki líka form ... er ég þá ekki í frjálslegu og flottu formi :haha:

Love you all og eigiði gott laugardagskvöld og gerið ekkert sem ég myndi ekki gera :klikk:


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.07.2005 14:01:58 / Daisy

4. ágúst 2005

Bara 20 dagar í að krakkarnir mínir koma aftur heim til Drammen en þá eru þau líka búin að vera í heila 50 daga á Íslandi og þvælast út um allt með mömmu og pabba.  Núna eru þau í viku hjá Þóru ömmu og Eika afa og ætla að vera þar í viku ... rosa stuð í pottinum og að leika við litla bróður sinn :)

Erik og Tómas Karl eru víst að gera allar stelpur á Íslandi óðar ... enda með eindæmum fallegir drengir þar á ferð.  Sonur minn alveg eins og mamma sín og hinn fallegur eins og sexy frænka í Drammen ;)  Þeir eru svo heppnir.

En vitiði hvað ... gleðifréttir ... það er byrjað að rigna pínu í Drammen ....... sem betur fer, ég var búin að fá mikið meira en nóg af hitanum hérna.  Ég er búin að sofa á dínu við galopnar svaladyrnar síðan Helga og Dagmar kvöddu mig.  Veðurspáin í gærkveldi sýndi sól og skúri í dag og um helgina svo er bara að sjá hvað gerist í næstu viku en Kalli bróðir fær ekki sama veður hérna og Dagmar 8)
Sem minnir mig á það ... Kalli og Katríne (nýja dama bróður míns ;)) eru að koma til mín á sunnudaginn þannig að ég verð að vera dugleg að æfa mig í norskunni enda er hún víst gagnfræðiskólakennari :$ sú á eftir að hlæja að mér ... :evil:  ég verð ALVEG BRJÁL ef hún vogar sér :P  eða þannig ... :haha:

Love you all ..... ætla að líta á imbann ... steg for steg :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.07.2005 21:16:31 / Daisy

VÁ ... Mín í stuði í dag :-)

3ja færslan mín á bloggið í dag ... það er eins og fyrri daginn ... í ökkla eða eyra ;)

En ég gleymdi að segja ykkur að ég fór í viðtal hjá atvinnumiðlun hérna í gær sem gekk bara nokkuð vel þótt ég hafi BARA mátt tala norsku sem gekk vonum framar miðað við það að ég er búin að vinna heiman frá síðan ég flutti út og að mestu bara umgengist íslendinga eða norðmenn sem æfa sig á enskunni sinni á mér :evil: en allavega ... Andreas sagði að ég ætti eingöngu að tala norsku hérna ... always, svo ég ætla að leifa ykkur að sjá hvað Dan er búinn að kenna mér að skrifa um sjálfa mig þegar ég sæki um vinnu ... 8)

Jeg er sett på som en positiv, omhyggelig, pålitelig, ærlig og omgjengelig person.  Har stå på vilje, er engasjert i det jeg driver med, og er glad i nye utfordringer.  Jeg har lett for å tilegne meg nye kunnskaper og å sette meg inn i nye arbeidsoppgaver.  Videre har jeg lett for å omgåes andre mannesker og er lett å samarbeide med :haha: Forøvrig kan det nevnes at jeg er ikke røyker og har anledning til å tiltre en eventuell stilling umiddelbart. 8)

Eru þið ekki sammála (og bara þeir sem þekkja mig meiga tjá sig ;) )


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.07.2005 20:36:51 / Daisy

UNGKAREN VII - Charlie

Oh yeah ... nú bara verð ég að tjá mig :D

Rosalega ertu stelpur BITCHIE þegar kemur að karlmönnum ... og sumar leggja sig ansi lágt, vægt til orða tekið og missa alla sjálfsvirðingu :$

Í kvöld, á TVNorge, var að byrja 7unda þáttaröðin með Bachelor og sá nýi heitir Charlie, voða sætur og allt það  ... en stelpur ... eina reglan er sú að það eru engar reglur :klikk:  og það skondna við þessa þáttaröð er að hún á svooooo heima í raunveruleikanum.  Enginn prinsessuleikur eða þessháttar eins og hefur verið heldur bara næstum því eins og Djúpa laugin ;)  hehe

Begga mín ... þú mátt ekki missa af þessarri þáttaröð þegar hún verður sýnd heima ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2005 11:26:00 / Daisy

Með sól í hjarta :-)

Ohhhhh hvað mér líður vel :D  það er svo rosalega gaman að kynnast nýju fólki ... og nýjum hliðum á þeim sem maður nú þegar þekkir ;)
T.d. í dag er ég búin að eignast frábærann íslenskan vin sem er búinn að búa í Noregi í 7 ár og um leið kynntist ég nýjum hliðum á fólki sem ég áður þekkti ... GOD hvað það er gaman að vera svona heppinn.
En ég, Aldís, hef bara eina hlið ... og hana geta allir lesið eins og opna bók (eða blogg ;))
En vá hvað ég verð alltaf hissa þegar ég sé að sumir hafa allt upp í 4 - 6 hliðar ... og sumar all skuggalegar og sceary fyrir þá sem þurfa að umgangast svoleiðis fólk dags daglega.  Ætli þetta sé geðklofi :!:  I wonder :$

En í dag tekur lífið nýja stefnu ... UPP Á VIÐ ... like always, enda fátt annað hægt þegar sól er hátt á lofti og fyllir manns hjarta 8) 
Today is a new begining og I´M NUMBER 1 ;)  Ég er takmarkalaus and I love live to the fullest :haha:

Og að lokum eru hérna smá viska ... taki þeir það til sín sem eiga  ;)
WHAT GOES AROUND, COMES AROUND 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.07.2005 09:03:25 / Daisy

Tómlegt í kotinu ...

Stelpurnar farnar og allt er orðið hljótt :cry:
En síðasta vika var alveg stórkostleg og ég hef sjaldan skemmt mér eins vel í eins langan tíma.  Takk stelpur fyrir frábærann tíma ... HUSK ... Bli med Gry á DDE eftir 9ár ;)

Ekki má svo gleyma afmælisbörnum dagsins, Kristjana Freydís og Erna Hlín vinkona.  Til hamingju með daginn dömur :D

Og hérna kemur svo pistill sem kroppurinn Krummi sendi mér áðan.  Enjoy 8)

Og mottóið var “GÅ BLI MEÐ GRY”

Enn og aftur tókst henni vinkonu minni (með hjálp okkar Dagmar of course) að komast í gegnum næstum viku með hlátur á vörum ALLANN HEILA TÍMANN.
Nema þegar Dagmar fékk kast þegar hún fattaði að það voru “animals” á teppinu okkar á ströndinni.  Það var líka í eina skiptið þá datt brosið mitt af og breittist í öskur og Aldís setti upp keppnissvipinn og þeytti í leið flautuna til að vera fljótari til okkar þar sem hún var á leiðinni hjólandi yfir brúna.

RIGNINGIN!!
Nei hún var farin þegar ég mætti á svæðið… Ég þakka Allah.. Og sólin skein ALLANN tímann.  
Það var sól í hjarta og á himni í Drammen þar til í gær.  

NEMA!!
Jú hér koma fréttir af tónleikunum.
Mættum kl. 6.. allar á hlírabolum og stuttum buxum eða pilsum.. engar yfirhafnir… Það var svoooooo heitt.
DDE Stigu seinastir á svið og þegar fagnaðarlætin brutust út þá OMG PANG it was raining men.. hefði maður geta haldið.. regndroparnir voru á stærð og þyngd við þá allavega og jafnheitir ;)
En það var ok.. það drukknaði enginn í miðbænum í Drammen þetta kvöld nema kannski í bjór.

AKER BRYGGE!!
Fallegt…. Hiti fallegt fólk og jú….. GEGGJAÐUR matur.  

KEILUKVÖLD!!
Fyrst borðuðum við stelpurnar í hópnum saman… ískalt pastasallat “a’la Dagmar”
Meiriháttar!!
Team 1.  Aldís, Dagmar, Oddrún og Stefán..
Team 2.  Helga, Heiðbrá, Christel og Olle..
Stigin voru allsskonar en Dagmar var eiginlega maður kvöldsins.
Takk fyrir frábæra skemmtun alles… líka eftir keiluna
“Nóttin” var frábær.. hún var bara svo dimm og erfitt að losna við hana HAHAHA.

HELGIN!!
Amazing.  
Sumum atburðum er bara ekki lýsandi.  Öðrum á ekki að lýsa.  
Allavega þá er þetta búinn að vera frábær tími.  Eins og við var að búast.. þar sem KAK eru saman komnar.  Matur, tómatar, eplasafi og svart te og góður félagsskapur!! Hvað getur maður beðið um meira.
Sunnudagurinn var haldinn heilagur. Dagmar sá um að ræsa kl. 8 um morguninn.
10 tíma keyrsla framundan hjá henni…. En hún komst á leiðarenda
Við Aldís spiluðum Idiot það sem eftir var dags úti á svölum..
Nema þessa stund sem fór í fyrirsætuleik :P 
Aldís grillaði geeggjaðann lax á teini.. Og fylgdi mér svo í bus-inn.
Mín ferð gekk slysalaust fyrir sig fyrir utan eina bilaða rútu..
Ég kýs heldur lestirnar… en það er nú ekki eins og ég sé ekki orðin vön svoleiðis skemmtilegheitum..
Maður eignast svo marga vini þegar eitthvað klikkar ;)

KVEÐJA!!
Aldís og Dagmar dúllurnar mínar… takk fyrir samveruna!! Tusen takk.
ODDRÚN, HILDA OG HEIÐBRÁ!!
Þið klikkið ekki I love you guys.
Þið hin sem komuð að gleðinni líka… gleðipinnarnir mínir.. haldið áfram að gå bli með gry.. það er ekkert annað sem bliver í þessari veröld.
Og gleymið ekki einu…..
I’LL BE BACK!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.07.2005 16:30:23 / Daisy

LITT FOR VARMT ....

Það er allllllllllt of heitt hérna og við erum í því að flýja sólina 8) 
Vorum á ströndinni í dag og ég þurfti ekki meira en korter og þá var ég tilbúin til að drífa mig inn .... allllllllt of heitt í Drammen ....
Hvernig er annars verðrið heima ;)

En það er búið að vera svooooooo gaman hjá okkur hérna.  Fórum á geððððððððððveika tónleika á miðvikudaginn, DDE og Carola .... ógeðslega gaman .......
Í gær fórum við á Aker brygge, spókuðum okkur þar í brjáááááluðum hita.  Tante Heiðbrá kom og hitti okkur og saman röltum við á frábæran indverskann veitingastað ... og þvílíkt fallegur þjónn :P  og hann var meira að segja eigandinn líka.  Hann bauð okkur uppá ís í desert af því að við vorum svo ferlega skemmtilegar ;)

En allavega .... núna verð ég að kveðja ykkur því það er komin matur.  Etterpå förum við svo í keilu og karaoki áður en bærinn verður settur á hvolf af 5 GLÆSILEGUM íslenskum megabeibum ;)  Lov'ya all og góða helgi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2005 18:08:36 / Daisy

HAHAHAHAHAHAHAHAHA :-D

Það er loksins farið að rigna í Drammen ... af því að Helga er á leiðinni ... HAHAHAHA :lol:  Ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið yfir rigningunni áður ... :lol: :lol: :lol: :lol: :lol:

Það eru fáir eins seinheppnir og hún Helga mín.  Eins og þið vitið þá er hún, akkurat núna, í flugvél Flugleiða á leiðinni til Osló og hún er búin að hringja í mig á hverjum einasta degi undanfarið og tilkynna mér það að það sé eins gott að veðrið haldist eins gott og það er búið að vera síðastliðnar vikur ... maður er búin að vera að bráðna hérna í sólinni 8) ... sturta minnst 2x á dag ... og viti menn ... Helga hoppar uppí vélina og það fer að rigna :haha:  Hún verður BRJÁLUÐ þegar hún lendir ........ og ég bara hlæ :haha:  "Litli skratti segir 10" :klikk:

Dagmar var líka að leggja í hann til mín frá Løvenstad (held ég að það heiti) ... allavega frá Addý og Gunna ;)  Það verður rosa gaman hérna á Tordenskioldsgötunni í kvöld.  Þótt að það rigni þá höfum við hina ýmsu innileiki ... eins og t.d. SINGSTAR :haha:  og ég var einmitt að kaupa nýjann disk í dag, norske hits ... það verður bara gaman hjá okkur ;)

Love you all og ég bíð spennt eftir stelpunum :D
P.S. Já Begga mín ... Dandý, Eva Rakel og Lára ... ykkur er nær.  Þið gætuð verið á leiðinni í rigninguna hérna með Helgu en nei nei ... veriði bara heima ;)  HAHAHAHA ... Ég er í algjöru kasti hérna núna :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 51 dögum
Þorrablót í Drammen
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 99876
Leitarbox