La vita e'Bella i Happyvalley

Daisy

31.08.2005 10:47:36 / Daisy

17 vöðva eða 43 !!!!!!!

Jæja elskurnar mínar ... mörgum er ansi heitt í hamsi þessa dagana en vonandi jafna allir sig og halda áfram að brosa framan í lífið því við þurfum jú bara að nota 17 vöðva til að töfra fram svona bros :haha: en fyrir ykkur hin sem kjósið ygglibrún þá þurfið þið að nota 43 vöðva fyrir þetta :whut:
Persónulega kýs ég að nota bara 17, ekki það að ég sé svona löt heldur notaði ég svo ansi marga í 20km hjólreiðatúrnum mínum í dag + púlið í vinnunni :haha:

Annars langaði mig bara til að tjá mig um Alan Shearer og Micheal Owen í dag :D
En mikið rosalega var ég fegin að Owen þáði ekki boð Shearer um níuna frægu enda enginn þess verður að klæðast Newcastle treyju númer 9 nema my favorit player... (og ég ;)
Vonandi verður svo boltinn skemmtilegur í vetur, skemmtilegri en íslenski boltinn í sumar þar sem mínu líði gekk ekkert of vel :(

ÁFRAM MANCHESTER  ... (og Newcastle ;))

P.S.  Hvers vegna þjáist fólk af bílveiki?
Augun flytja heilanum þau boð að þú sitjir kyrr en frá sérstökum hlutum eyrans berast heilanum boð um að allt sé á hreyfingu.  Líffærin vita ekki sitt rjúkandi ráð og þér fer að líða illa.
Og þar hafiði það :D   Smá fróðleikur í dag ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.08.2005 17:17:12 / Daisy

Samtýningur 2

Komnar eru inn fleiri gamlar myndir, samtýningur 2.

Er að vinna í að koma inn nýjum myndum líka en það kemur ekki alveg strax ... ég er að skemmta mér svo rosalega við að skanna inn þessar gömlu myndir :haha:

Håper at dere liker dem sånn som jeg gjør ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2005 14:00:08 / Daisy

Gáfnafar ...

Eitthvað er í fréttum heima á Íslandi að karlmenn séu gáfaðri er konur.  Ég blæs nú bara á svona fleiprur enda er ég sjálf búin að þreyta greindarpróf Wechslers hjá Þorgeir Magnússyni sálfræðingi og er hér um að ræða all víðamikið greindarþroskapróf að ræða, samansett úr ellefu prófþáttum sem ýmist reyna fremur á munnlega eða verklega hæfileika.  Niðurstöður gefa upplýsingar um vitsmunahæfileika og almenna getu hins prófaða en gefa einnig vísbengingar um ýmis einkenni persónuleikans.
Og hérna koma mínar niðurstöður :haha:

"Niðurstöður sýna greindarþroska yfir meðallagi.  Árangurinn er einkum góður á verklega sviðinu þar sem reynir á glöggskyggni, rökvísi, hraða og útsjónarsemi í vinnu með form og rými.  Í atvinnu sinni starfar Aldís einmitt á sviði þar sem þessi styrkleiki hennar ætti að nýtast vel (ég var að vinna hjá OR þegar prófið var tekið, við teikningar).
Á munnlega sviðinu dregur almennur þekkingarforði og nákvæmni í orðaskilningi Aldísi dálítið niður en árangurinn er eigi að síður viðunnandi og vitnar munurinn líklega fremur um áhugsvið Aldísar og skapgerð en sérstaka veikleika (enda hef ég ekki mikinn áhuga á að liggja yfir bókum og þess þá heldur að ég leggi nöfn höfunda á minnið:$).
Samkvæmt þessu ætti hún að vera fremur úthverfur persónuleiki sem hneigist fremur til athafna en staðreyndasöfnunar og yfirlegu.  Einbeitingarhæfi er góð og Aldís virðist laus við truflandi kvíða :D.

Ég er bara brilliant elskurnar mínar :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2005 11:12:50 / Daisy

Drama

Það var engin smá drama hérna í gangi á fimmtudagskvöldið.
Erik Örn kom heim um hálftíu og sagði mér að löggan væri búin að loka götunni, hann mátti bara fara inná svæðið afþví að hann býr hérna.  Við stelpurnar þustum náttúrulega beint útá svalir til að forvitnast og viti menn ... þarna voru löggubílar beggja vegna götunnar og lögreglumenn með vélbyssur og hunda 8|
Ég verð nú að viðurkenna það að mér stóð ekkert á sama og sendi stelpurnar beint í rúmið og læstu hurð og gluggum.  Það var ekki eins auðvelt að senda Erik inn því hann var þvílíkt forvitinn og spenntur.  Skömmu síðar kallar Erik á mig aftur út á svalir
"mamma, mamma ... koddu ... það eru fimm löggur að fylgja manni af svæðinu"
fimm mínútum síðar kallar hann aftur,
"mamma, koddu aftur ... núna eru þeir að leiða einn út í handjárnum"
Fljótlega komu svo fleiri lögreglubíla aðsvífandi og maður stóð bara sem eitt spurningarmerki ... hvað er eiginlega í gangi :!:
Og að sjálfsögðu fór Erik og spurði þegar einn maður hafði labbað framhjá og sagt okkur að það væri bara verið að mynda, og hann komst að því að það hefði verið framið rán hérna fyrir ca 2 árum og þetta væri sviðsetning til að mynda það sem gerst hafði þá.  Vá hvað minni létti en samt finnst mér þetta mjög einkennilegt allt saman .... finnst ykkur það ekki :$

Skrítið að láta íbúana ekki vita, hvort heldur var ... raunveruleiki eða sviðsetning :S

Heyrðu ... og viti menn ...
Ég ákvað að hjóla ekki í vinnunni heldur hvíla á mér HENDINA og taka bussinn :$ 
Jebb ... ég sagði hendina ;)  Ég er komin með svo hrikalega sinaskeiðabólgu í hægri hendi, (atvinnusjúkdómur hjá okkur ræstitæknum) og það er álag á hendina líka að hjóla þannig að ég tók mér hjólabreik í gær enda föstudagar erfiðustu dagarnir í vinnunni.

En eitt finnst mér nú samt alveg merkilegur ands....
Það er alveg sama hvað ég hjóla og púla í vinnunni, ég léttist ekki um eitt fucking gramm :evil:
Eina sem virðist virka hjá mér til að koma mér í kjörþyngd er að verða ólétt eða borða Herbalife 8)
hummmm .... hvort ætti ég að gera núna ....

ólétt - herbalife - ólétt - herbalife - ólétt - herbalife - ólétt - herbalife - ólétt - herbalife - ólétt - herbalife - ólétt - herbalife :!:

Hvað finnst ykkur ... pabbi, viltu eitthvað tjá þig um þetta ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2005 12:57:01 / Daisy

MYNDIR

Jæja elsku dúllurnar mínar ... núna er mín komin í "skannstuð" og ég er að setja inn allskonar gamlar og misskondnar myndir á síðuna mína (neðst til vinstri, Myndir, samtýningur)

Enjoy elskurnar ... ég kem svo til með að setja inn nýjar myndir líka fljótlega ... og fullt af fleiri gömlum myndum, mörgum til mismikilla ánægju ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.08.2005 10:48:57 / Daisy

Tað rignir í Drammen ........

MIKIÐ .... :evil:

Ég var alveg ferlega löt í morgun og fór ekki á fætur fyrr en kl.05:30, skellti mér í sturtu (kom síðar í ljós að það var tímaeyðsla) og gerði nestið tilbúið fyrir krakkana. Úti beið mín fákurinn fagri en ég var rétt komin útá gangstétt þegar fór að hellirigna en ég lét mig hafa það og henti mér í regnjakkann og hélt áfram að hjóla ... og þetta var púl helvítis (meira að segja Dandy hefði orðið stolt af mér :haha: ) því ég þurfti að berjast við mótvind og rigningu alla leiðina ... og stór hluti leiðarinnar er uppá móti :^)  En þetta hafðist og ég mætti til vinnu kl.06:40 ....... holdvot í gegn :evil:

Rúmlega níu hringdi svo Ester í mig úr skólanum og bað mig um að koma með þurr föt handa sér og systir sinni + leikfimisskó ... sem þýddi að ég þurfti að setja skúringarnar í fluggírinn, hjóla svo 10 km heim í grenjandi rigningu, ná í þurr föt og leikfimisskó og hjóla 2km í viðbót uppí skóla til stelpnanna með þetta ... og það var óborganlegt að sjá svipinn á kennaranum hennar Esterar þegar ég bankaði á skólastofuhurðina ... það svoleiðis lak af mér, eins og ég hefði akkurat verið að stíga uppúr sundlaug ... í öllum fötunum :P
Oh yes my brothers ... það rignir stundum í Drammen líka ;)

ROSALEGA ER ÉG STOLT AF SJÁLFRI MÉR :haha:
Lagið HERO var sko samið um mig ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2005 09:31:37 / Daisy

í belg og biðu ......

Tante ... email addressan mín er hausinn á síðunni litli vingull ;)
en þú getur líka notað kosselius@visir.is því ef ég þekki þig rétt þá eru emailin þín ekkert lítil svo ekki veitir af góðu plássi :lol:

Annars er allt gott að frétta hérna fyrir utan smá depression sem ég er að ganga í gegnum :cry:  veit ekki alveg hvað það er en jú, ég er alveg fjúkandi ill því að aumar litlar væskilssálir eru alveg að gera útaf við mig og hverjir blæða fyrir það ... jú ... börnin mín.
Sumt fólk kann bara ekki að skammast sín og ætti helst að skríða undir stórann stein og láta sig hverfa úr þessu tilverustigi ... aldrei að vita nema þeir nái að þroskast pínu ef þeir koma nógu of til baka, þ.e.a.s. ef þeir kunna, geta og vilja læra.  JÁ, ÉG ER ILL NÚNA :^)

En fyrir utan aumingjana sem vefjast óþægilega illa inní mitt líf þá höfum við það gott.  Stelpurnar eru í útiskóla í dag og ég veit ekki hvers vegna ég var að senda þær með regngalla í skólann því að venju er veðrið æðislegt en í gærmorgun ringdi eldi og brennistein.  Ég lagði af stað hjólandi í vinnuna kl.04:30 og kl.04:32 var ég orðin holdvot í gegn :evil: en þetta var samt hressandi túr og var ég komin inní Røyken kl.05:03 ....... og ekki á mér þurr þráður :$

Heyrðu já ... Í gær komst ég að því að Ester er líkari bróður sínum en ég hélt.
Fljótlega eftir að ég kom heim úr vinnunni í gær komu krakkarnir heim úr skólanum og ég ákvað að leggja mig í smá tíma svo ég sagði þeim systrum að hafa ekki hátt því ég ætlaði að leggja mig og Erik að horfa á sjónvarpið.  Nema hvað ... fljótlega eftir að ég sofna hrekk ég upp við þvílíka píkuskræki og hlátur svo ég tékka á málunum ... og viti menn ... Ester var komin með 5 "Au Pair" stelpur á aldrinum 2ja - 14 sem voru að taka til í herberginu þeirra (Erik er alveg snillingur í að fá aðra til að gera þetta fyrir sig líka)

Og eitt enn ..... Í gær, LOKSINS, heyrði ég rödd minnar heitelskuðu :D  Farmaurinn minn er loksins komin til síns heima og að hennar sögn "loksins orðin brún" :$  And that makes me wonder ... er hún þá núna loksins orðin eins og kaffipokinn sem þú tekur úr vélinni :!:
Nei ég bara spyr ... síðustu 15 ár hefur hún verið alltaf verið brún ... allavega á mínum mælikvarða (það verður interesting að heyra hennar viðbrögð við þessum ummælum mínum :P )
Helga mín ... þú hefur alltaf verið fallegust í mínum augum ... hvað viltu meira :!: :!: :!:  Og drífðu þig á MSN

En eitt var það umræðuefnið sem hæst bar á góma hjá okkur Helgu í gær en það var forgangsröðun foreldra sem við þekkjum varðandi börnin þeirra ...
Mjög svo athyglisvert umræðuefni sem ég get því miður ekki farið nánar útí hérna því þá fæ ég bara á mig lögfræðinga og fangelsishótun ... Ef sumir hefðu bara þann þroska til að drattast til að draga strútshausinn uppúr sandinum og líta í eigin barm og SKAMMAST SÍN !!!  Það eru bara ekki allir hæfir til að vera foreldrar ... det er bare sonn 8)

En jæja.  Það er helling annað en að blogga sem býður mín áður en krakkarnir koma heim so hade og ha en riktig fin dag :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.08.2005 10:57:34 / Daisy

Drammens Elvefestival

Helgin er búin að vera alveg yndisleg.  Hérna er búin að vera 4ra daga elvefestival, frábært veður (þarf nú varla að taka það fram 8) ) og heilmikið um að vera.

Við vorum með gesti í mat á föstudeginum.  Oddrún, Ásgerður og Aðalsteinn komu til okkar í djúpsteiktann karfa (og í 1st sinn ever brann karrýsósan við hjá mér :^) en ég gerði þá bara nýja) og maturinn smakkaðist að sjálfsögðu rosalega vel í frábærum félagsskap.
Á laugardaginn kom svo tante Heiðbrá til okkar og hitti okkur niðrí bæ þar sem við fórum á fornbílasýningu, í tívolí, á listasýningu, horfðum á spíttbátakeppni (Drammen grand pris),  dans- og karetesýningu þar sem bekkjabróðir hans Eriks var að sýna karate en hann er þrefaldur heimsmeistari í karate og svo fylgdumst við með Stefáni og Co í róðrakeppni en þeir komu inn í öðru sæti, brot úr sekúndu á eftir sigurvegurunum ... algjör bömmer ... :evil:
Svo kom náttúrulega að því að við fórum heim til að grilla en á heimleiðinni fékk Heiðbrá svona líka svakalegt ofnæmiskast þar sem annað augað sökk á henni, lokaðist og bólnaði upp eins og á fílamanninum.  Það var hræðilegt að sjá greyið.  Og eins og það hafi ekki verið nóg þá þrengdist fyrir hálsinn á henni og nef þannig að hún varð þvílíkt nefmælt og átti erfitt með andardrátt.  Við brunuðum beint í næsta apótek sem því miður var búið að loka en við hittum Mæju hans Bigga en svo "heppilega" vildi til að hún hafði fengið ofnæmi fyrir 2 árum eða svo og átti ennþá til 2 töflum þannig að vid drifum okkur heim til hennar þar sem Heiðbrá gleypti í sig töflu og svo skvetti hún augndropum í augað en þá hafði hún blessunnarlega með sér í töskunni.  Alveg merkilegt hvað þetta sló fljótt á áhrif ofnæmisins en Heiðbrá vildi samt ekki út á tónleika því greyið hafði áhyggjur af því að ég fengi meiri athygli karlpeningsins þar sem hún leit út eins og hún hefði verið að koma af 3ja mánaða fyllerýishátið þar sem hún hefði líka þegið kjaftshögg eða tvö (litli skratti segir 10 :klikk: )   Kvöldinu eyddum við því bara heima og tókum slag útá svölum.
En þetta var ekki búið ... Guðjón kom til okkar á Harleyinum á sunnudeginum og saman röltum við í blíðaskaparveðri niðrí bæ.  Þar ætlaði hann að bjóða mér með sér í þyrluferð yfir Drammen en við vorum aðeins of sein.  Þeir voru hættir að selja miða en aðsóknin var svo gríðarlega að þeir hefðu í raun þurft að fljúga til miðnættis til að sinna eftirspurn en það má ekki þar sem flogið er yfir íbúðarbyggð svo ég verð bara að fara á næsta ári.  Þess í stað röltum við niður í bæ þar sem mjög svo einkennileg skemmtiatriði voru á sviðinu :$ við settumst því bara á útikaffihús á meðan krakkarnir fylgdust spennt með "skemmtiatriðunum"  að lokum bauð Guðjón okkur á Peppes pizza þar sem allir borðuðu á sig gat áður en heim var haldið til að ná góðri hvíld fyrir nýja vinnuviku sem hófst með hjólreiðatúr uppí Røyken kl.04:30 í morgun :haha:  Núna er ég að spara mér 210,- nkr á viku og fæ gott trimm í bónus ... er ég ekki brilliant ;)

En núna þarf ég nauðsynlega að drulla mér í sturtu og slappa pínu af áður en ég helli mér í skattakærur og skemmtilegheit :evil:

P.S. Rut ... það er bara allt þokkalegt að frétta af farmaurnum þessa dagana ... fyrir utan reglulega heilsubresti.  Annars er ferðin í heild sinni búin að vera topps og þvílíkt ævintýraleg.  Þú færð þetta allt beint í æð yfir rauðvínsglasi í Skólagerðinu annaðkvöld ;)

P.S.S. Mamma ... það var ekki að sökum að spyrja með ykkur Hrönny ... alltaf á kaffihúsunum með öl í hendi :P og alltaf er ég skilin útundan :^)  Jói bauð mér ekki einu sinni í heimsókn þegar ég var síðast á Íslandi :cry:  En ég erfi það ekki ... svo framarlega sem ég fæ sent formlegt boðskort í næstu heimsókn :haha:  Þá verður honum fyrirgefið ;)

P.S.S.S. Marinó minn :D  VG skrifaði um það um helgina að besti staðurinn í Noregi í sumar var DRAMMEN 8)  Bara sól, brjálaður hiti og algjör blíða (fyrir utan rigninguna sem Kalli fékk þagar hann kom hingað :haha:  Ekki skil ég hvað þau eru að hanga þarna í rigningunni fyrir vestan ... :$

Sólarkveðja frá okkur í Drammen til allra heima á fróni 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.08.2005 11:19:15 / Daisy

Ekki bara rækjur ...

Ég ætla sko að tala um meira en bara rækjurnar í dag því núna er mín alveg að springa úr stolti :D

Í dag fór ég á fætur kl.04:00, dreif mig í sturtu og á fákinn minn fríða sem bar mig alla leið upp til Røyken tímanlega kl.05:00 í morgun :haha: þar beið mín 6 tíma strit við þrif sem gengu bara rosa vel (því að þá var ég búin að losa ruslið af 188 borðum og þurrka af 127 skrifborðum og tölvum áður en liðið mætti til vinnu) og svo stökk ég á hjólið aftur kl.11:00 og brunaði heim á leið. Ég hélt nú reyndar að ég yrði miklu fljótari heim en uppeftir (35 mín) en ég var víst jafnfljót báðar leiðir þótt að keðjan hafi dottið af á leiðinni uppeftir. Ég er alveg rosalega stolt af sjálfri mér í dag (like always :haha: )

Í kvöld koma svo Oddrún og Ingi ásamt fjölskyldu í djúpsteiktann fisk til okkar :D Ég elska matarboð ... ég þyrfti helst að vera með hláft annað þúsund á dag í laun til að halda öll þau matarboð eins og mig dreymir um að gera ;) enda er ég ekkert smá góður kokkur :klikk: þarf bara að koma Erik uppá lagið með að borða alvöru mat en stelpurnar eru minna mál. Þær borða allt það grænmeti sem sett er á diskinn þeirra og flest allann mat ... erfiðast er að koma ofaní þær kartöflum en annars eru þær mjög duglegar þessar elskur og þvílíkt stoltar af sjálfum sér þegar þær borða "fullorðinsmat" :haha: Eitt er það þó sem Ester ætlar seint að sleppa en það er tómatsósan. Það er tómatsósa nánast með öllum mat ... en ég gef mig ekki á aðfangadag þegar hún heimtar tómatsósu með hamborgarhryggnum ... þá segir mamma "nei elskan, því núna eru jólin og þá borðum við brúna sósu" :haha:
En vá ... útí hvað er ég komin :$ jólamat :!: :!: :!: snap out of it Aldís

Ég ætlaði að segja ykkur að lúsin er DAUÐ og krakkarnir eru byrjuð í skólanum aftur. Fyrsti skóladagurinn var í gær og allir voru rosalega lukkulegir með að hitta alla vini sína og kennara aftur ... meira að segja Erik Örn (nema hann hoppaði ekki hæð sína og faðmaði Steinvør, umsjónakennarann sinn), hann var glaðastur við að hitta alla félagana aftur og sjá hversu mikið stelpurnar höfðu "þroskast" í sumar á meðan hann var á klakanum 8) já og allar þær nýju sem komu upp í 8bekk (hann er í ungdomskole sem er bara með 8, 9 og 10 bekk) Litli drengurinn minn er að verða fullorðinn :cry: ... og gelgjan að drepa hann :evil: Og eins og það sé ekki nóg að þá er hann líka orðinn hærri en mamma sín :evil: ég átti nú síst von á því (enda með eindæmum hávaxin UNG kona sem fær ekki á sig buxur keypt í réttri sídd) Það er svo erfitt að vera ég :P

En jæja ... margt sem þarf að huga að og drífa sig í áður en tekið er á móti gestum í middag svo ég ætla að kveðja ykkur í bili með þessum fleygu orðum ....

"SKRIFIÐI Í GESTABÓKINA EÐA COMMENTERIÐ Á DAGBÓKARFÆRSLURNAR MÍNAR" :haha: Það er rosa lítið gaman að halda uppi bloggi þegar maður fær engin viðbrögð frá ykkur.
Erik Örn gafst upp og er hættur að blogga .....
Maurinn er hættur .......
sem og nafna mín og frænka + Katrín steinalöggudóttir ...
Soooooo ....... keep me going elskurnar ;)  Good to have some motivation ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.08.2005 10:47:10 / Daisy

Rækjur ......

Norðmenn borða 10 þúsund tonn af rækju á ári

Ársneysla Norðmanna á rækjum er hvorki meiri né minni en 10 þúsund tonn á ári. Það samsvarar því að hvert mannsbarn borði meira en tvö kíló af rækju á ári.

Á vef Fiskifrétta, skip.is, segir að sala á rækju á innanlandsmarkaði hafi aukist um 7% í fyrra miðað við árið á undan. „ Af þessum 10 þúsund tonnum af rækju neyta Norðmenn um 5 þúsund tonna yfir sumarmánuðina. Aukin fjölbreytni í matargerð og vinsældir asískra rétta skýra aukninguna að hluta en einnig eru rækjur vinsæll kostur í ýmsum megrunarréttum,“ segir á vef Fiskifrétta, en þetta er haft eftir norska ríkisútvarpinu, NRK.

Þetta var ég að lesa á MBL.IS áðan ... en vitið hvað ... rækjan er seld hérna í eins og gotterý í frystiboxi, ópilluð, sem þú sjálf mokar uppúr og svo eru haldin rækjupartý þar sem hver og einn pillar sínar rækjur og borðar með sýrðum rjóma :$  ég á ennþá eftir að fara í svona partý en það verður bráðum ... og það á eftir að verða very interesting þar sem hingað til hefur verið hlegið að mér þegar ég segi að ég hafi nú unnið í rækjunni heima ... við að pilla á færibandi.  Það finnst þeim nú alveg totally tútalt og gjörsamlega galið :^)
Ja hérna hér .......... :!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2005 11:47:32 / Daisy

TUSENFRYD ... dagen er din!

Endelig :haha: á laugardaginn var skellti familian sér ásamt Tómasi í Tusenfryd (www.tusenfryd.no) þar sem allir skemmtu sér konunglega ... "besti dagur ævi minnar" sögðu þau öll í kór á heimleiðinni :D  ekki leiðilegt að heyra það.
Þarna er stærsti trérússibani Evrópu sem við fórum öll í ... og Elena sat í fremsta vagni og gólaði "mamma, mamma, mamma, mamma" allann tímann :lol:
Annars er þessi garður alveg brilliant.  Maður borgar bara inná svæðið og fer þá frítt í öll tæki utan eitt.  Verðið inná svæðið er mismunandi og fer eftir hæð, og núna tapaði ég heldur betur á að vera svona hávaxin því ég þurfti að borga hæsta gjald :evil:
Þarna komst ég að því hvernig þvottinum mínum líður á þeytivindu í brjáluðu tæki sem heitir RollOver.  Hetjan mín litla hún Ester Ösp steig svo með mér uppí Enterprise sem fer alveg á milljón í tóma hringi ... og svo á hvolf :$  Elena hafði ekki hjarta í sér til að fara með í þetta og hvorug þeirra fór með okkur í Loopen en báðar voru alveg æstar í að fara í Tømmerstupet ... og við fórum 2x :haha:  Ester var fremst í bæði skiptin því hún vildi blotna mest en svo þegar kom að því að fara í sundlaugargarðinn og í alvöru vatnsrennibrautir þá varð hún litli kettlingurinn hennar mömmu sinnar á meðan Elena hljóp upp aftur og aftur til að renna sér :D  Ester er afskaplega lítið fyrir að fara í kaf með andlitið og fyndið að fylgjast með þeim metast og mana hvor aðra upp :haha:  En það var eitt tæki þarna sem var alveg brilliant, Japp spaceshot, sem við Erik fórum í, hin sátu og fylgdust með okkur skjótast á milljón uppí loftið og hrapa svo niður :P
En allt tekur enda og eftir ca 8 tíma á þeytingi þar sem maður hristist upp og niður, til hægri og vinstri, á hvolf og útá hlið ... just name it ... þá fórum við heim með viðkomu á MacDonalds í Osló (gott að sleppa við að elda og vaska upp eftir svona útreið :$)
Í bólið skriðu svo sælleg og hamingjusöm börn, úrvinda af þreytu eftir frábærann dag 8)

Sunnudeginum eyddum við í afslöppun og þvotta, en ég var loksins að klára að þvo upp eftir laumufarþegana sem smygluðu sér út með dætrum mínum.  Ég er loksins búin að myrða allar fæddar og ófæddar lýs sem fundustu í ljósu lokkunum þeirra.
Eftir þvottinn lagðist ég svo í sólbað í yfir 30 stiga hita með bókina hans Böðvars Guðmundssonar, Híbýli vindanna, kaldann öl og með blues í græjunum 8)  algjör paradís.  Stelpurnar sátu og léku sér í Bratz í skugganum því þær voru að kafna úr hita (vandamál sem þær lentu ekki í á Íslandi ;)) en í skugganum er núna 24 stiga hiti ... og ég ætla því hér með að kveðja ykkur og drífa mig útá svalir í sólina og að sinna Hildu en hún var einmitt að skríða hingað inn ... og merkilega mikið klædd ... hvaðan skildi hún vera að koma :!: :!: :!:

 Adjæ alle og ha en riktig fin dag 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.08.2005 15:48:33 / Daisy

Kæra Dagbók (Daggan mín)

Kæra dagbók.  Nú er ég loksins sest niður til að sinna þér en síðustu dagar hafa verið mjög svo annasamir en skemmtilegir hjá mér þó smá skuggi hafi nú fallið á gærdaginn.

Á laugardaginn var bauð Oddrún mér með sér til Svíþjóðar þar sem við vorum mjög svo duglegar að versla eitt og annað ... þó aðallega kjúkling og sælgæti fyrir krakkana.  Þetta var nú pínu svona eins og að skreppa í Kringluna því allsstaðar heyrði maður íslenskuna ... alveg hissa að það hafi ekki verið spurt "norsk, svensk eller islandsk?" þegar maður var að borga, ekki bara "norsk eller svensk?" :haha:
En þetta var mjög svo kósy ferð hjá okkur stelpunum fyrir utan heimferðina því það var þvílíkt mikil umferð (enda ringdi eldi og brennistein svo allir notuðu tækifærið og fóru til Svíþjóðar að versla þar sem strandveðrið var ekki til staðar).  Þetta þýddi að við rúntuðum frá Nordby til Moss á 30km hraða ...
Lagið hans Valgeirs, "Hægt og hljótt" átti því vel við á heimleiðinni :evil: 
En heim komumst við þó um síðir og krakkarnir drekktu sér í candyfloss og meterslöngu tyggjói sem kláraðist skuggalega fljótt (N.B. meter á kjaft takk fyrir :|)
En þarna lauk ekki laugardeginum því yndið hann Stefán minn bauð mér í mat ... grillaður skötuselur, bakaðar kartöflur, salat og rjómasósa með sveppum og lauk :haha: geðveikt gott hjá The king of Lier, hann getur þetta strákurinn ;)
Frábær dagur út í eitt sem endaði á Galleriet en ég stoppaði stutt við þar.  Fór snemma heim að kúsa mér með krílunum mínum :D

En heyrðu Daggan mín :)  ekki tók svo við verri dagur þegar við loksins skriðum á fætur á sunnudeginum en þá hringdi Dagmar (ex)mágkona en hún var hjá Addý og Gunna í Løvenstad og ætlaði að koma til okkar í nokkra daga enda var hana farið að lengja í sól og sumardaga 8) en það fer víst ekki mikið fyrir þeim í Måløy :haha:  Svo það varð úr að um 18:30 á sunnudagskvöldið fylltist kotið og inn skriðu Dagmar, Palli, Stian, Kristrún, Friðjón og tante Heiðbrá :D  og að sjálfsögðu var ekki skriðið í koju fyrr en tante var búin að láta ljós sitt skína í Idiot enda mín á fullu að æfa sig fyrir heimsmeistaramótið :P  Strákarnir okkar, Erik, Tómas, Palli og Stian skelltu sér í bíó og gistu síðan allir heima hjá Tómasi.
Mánudagurinn var frábær fyrir utan smá skapofsa í sumum, réttu litla fingur og það er rifin af þér hendin 8|  Þá datt útúr mér að best væri bara að segja alltaf "NEI" með stórum stöfum og bæta svo við "það passar ekki núna, ég hef um sjálfann mig að hugsa ... and that is all I can handle" já og grenja svo mikið ... þá kæmist maður kannski í Guðatölu en það virðist nú oft fara þannig að því meira sem maður gerir fyrir suma þá verður vanþakklætið og væntingarnar alltaf meiri og stærri :^)  Dissaðu ... blekktu, svíktu,  ljúgðu og grenjaðu ... þá færðu alla þá athygli sem þú vilt ... EN ... á röngum forsendum :haha:  Nei takk, not for me (smá púst :klikk: )

En allavega ... strákarnir sváfu auðvitað út (enda seint í koju skriðið, eiginlega árla morguns) og skautuðu svo um bæinn en við Dagmar fórum með "litlu börnin" í magasinet til að leyfa þeim að versla sér föt en dömurnar mínar áttu sko alveg "helling af peningum" (þeirra orð) sem Þóra amma og Helga amma gáfu þeim áður en þær kvöddu klakann ... og það fannst þeim ekki leiðilegt :D
Svo þær versluðu sér 4 toppa, 2 buxur, 2 kjóla + peysur við og aðrar 4 peysur ... svo bætti ég við bikiní fyrir skutlurnar en fyrir allt þetta (- bikiní) borguðu þær ekki nema rétt ca 1.000,- nkr.  ekki mikið spreðið á þeim bænum ;) Að lokum var svo haldið heim með fangið fullt af pokum og allt mátað áður en maginn var fylltur.  Við Dagmar komum þeim litlu svo á óvart með því að bjóða þeim í keilu eftir matinn og það var ekkert smá gaman hjá þeim.  Öll að munda kúluna í fyrsta skiptið svo að "útfærslurnar" og taktarnir voru oft ALL SKEMMTILEGIR en þeim gekk samt merkilega vel og endaði:
Kristrún 79
Friðjón 81
Ester 85
Elena 65
Heim arkaði svo glaður krakkaskari sem gæddi sér á frostpinnum áður en tannburstinn réðist á leifar dagsins.

En viti menn ... á þriðjudeginum (semsagt í gær) komumst við að því að dætur mínar komu ekki einsamar heim frá Íslandi :evil:  Bunch af laumufarþegum læddist með þeim til Noregs (hárlýs :^)) þannig að gærdagurinn fór að mestu í að kempa og þvo 10 stk. vel hærða einstaklinga en blessunnarlega voru þær ekki búnar að dreifa þessum vibba á meðal oss ... hjúkk :$  svo hellt var í hárið á þeim eitri og í morgun eftir vinnu þríþvoði ég á þeim hárið, kemdi og plokkaði 1.000.004 egg úr hárinu á þeim og þvoði 1007 vélar af þvotti ... og þetta tekur sko tímana tvenna ... belive you me :frown:  Í gær var öllu hent út, eitthvað lenti í frystikystunni og restin var þvegin eða send útá svalir.  Þvílíkur viðbjóður :evil:  Þetta er eitt af sköpunnarverkum Guðs sem ég fæ ekki nokkurn botn í.  Til hvers í andsk..... er þetta til staðar ... á ekki alltaf að vera eitthver lógík á bak við öll sköpunarverk Hans :!:

En jæja, allt tekur enda ... liðið að vestan kvaddi okkur og lagði í hann snemma í morgun.  Áætlaður komutími til Måløy ætti að vera um kl.18:30 - 19:00 þannig að nú erum við bara ein í kotinu ... litla lúsuga familian :lol: og ég ætla sko snemma í rekkju í kvöld því það á að reyna við hjólreiðatúr í vinnuna á mjög svo ókristilegum tíma, árla morguns, svo það verði nú eitthvað úr deginum og ég geti fengið notið félagsskapar krílanna minna ... og þvegið og kempt :whut:  en æ já, alveg rétt ... ég þarf að koma við í Lier og skúra þar 1 stk. hús á heimleiðinni.  My new hobby ... SKÚRINGAR :^)
Who could have guessed!!!

En OH MY GOD ... nú ferðu að halda kj. stelpa og kveðja því það orkar enginn að lesa "langlokuritgerðarkjaftæði" :$
Svo nú set ég á þetta slaufu og kveð því það verður víst jú eitthver að fæða þessi grey sem koma snart hlaupandi heim með garnirnar gaulandi.  Upp með brosið og svuntuna stelpa :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.08.2005 12:12:06 / Daisy

Eitthvað gott bíður mín ... en hvað !!!

Nautið  ::  20.apríl-20.maí
 
Njóttu samverunnar með vinum þínum og reyndu að virkja sjálfið eins og þú mögulega getur um þessar mundir. Um þessar mundir ættir þú að átta þig á að karma annarra er ekki á þínu valdi. Eitthvað gott sem þú gerir ekki ráð fyrir mun gerast næstu daga sem ýtir undir góðar tilfinningar hjá fólki fætt undir stjörnu nautsins.

Góð dagsspá í dag ikke sant :haha:  Eitthvað gott mun gerast næstu daga ...
Ég fæ örugglega (vonandi) aðra vinnu því vinnan mín í dag er sú leiðilegasta og erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann unnið :evil:  Í efri salnum sem ég þríf eru amk 120 skrifborð með jafnmörgum starfsmönnum (þó eru all margir ennþá í sumarfríi og ég kvíði ekkert smá fyrir því þegar fríin þeirra klárast) ... en allavega, það eru ekki allir svo indælir að standa upp eða amk færa sig frá borðunum svo ég geti þurrkað af borðunum og skúrað í kringum þau.  Sumir sitja sem fastast ... en þá bara labbar mín í burtu, þau geta þá bara sjálf þrifið sinn skít :klikk: 
Við vorum alltaf svo þægilegar (vona ég) við þær sem þrifu hjá okkur á teiknistofunni (oops sorry, landupplýsingum og mælingum, ekkert smá langt og óþjált nafn á einni lítilli deild :S) nema hvað ... þegar "hreingerningarDAMAN" birtist á okkar gólfi þá stóðum við bara öll upp og fórum í smá kaffi :haha:
Annars er nú ekki fair að láta svona ... það voru all flestir rosalega almennilegir, tæmdu borðin sín og allt af gólfinu, brostu svo voða sætt til mín og sögðu "tusen takk" :D maður má ekki alveg missa sig í svörtu sauðunum.

En núna er ég loksins komin heim ... og ég var alveg að bráðna á hitanum úti 8)   Krakkarnir eru alveg á fullu að taka til í herbergjunum sínum (þau þurftu ekki langann tíma til að setja allt á hvolf :^) og svo ætla þau í sundlaugargarðinn, Marinlyst, en bara ef þau ná að ganga frá eftir sig fyrir kl.14:00 :lol:

En það er eitt sem hryggir mig mjög svo þessa dagana.  Helgan mín er að fara í safaríferð til Túnis með smá viðkomu í tívolíinu í Köben ... sem þýðir það að við dettum úr daglegu sambandi í heilar ÞRJÁR VIKUR :cry:  Dont get me wrong ... ég samgleðst henni innilega en boy oh boy ... jeg kommer til å savne henne skikkelig mye :cry:  men selvfølgelig ønsker jeg dem en hyggelig tur og håper at det blir en fantastisk ferie for dem.  De fortjener alt det beste ;)

Men nå ... nå må jeg gå til å gjøre barne klar for Marinlyst.  Hade og ha en rigtig god helg 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2005 20:13:30 / Daisy

FI318 ... Lending á Gardermoen kl.12:04

Og hálftíma síðar opnuðust dyrnar fram í "almenninginn" og inn gekk glæsilegur ungur "maður" með fulla trillu á undan sér og tvær léttlyndar, ljóshærðar hnátur með ICELAND derhúfur, trítluðu sitthvorumeginn við hann ... þau stoppuðu, litu í kringum sig og sáu þá mömmu sína með opinn arm sem brosti sínu breiðasta þrátt fyrir tárin sem fylltu augu hennar ... og þrenningin hló er í þeim gall ...
"hahahaha ... við vissum þetta ... hún fer alltaf að grenja" :$

Mikið roooooosalega var gott að knúsa þau aftur, fá þau loksins heim :D

Ekki gafst mikill tími til að knúsa og kyssa því við þurftum jú að ná lestinni heim sem fór frá track 4 kl.12:38 ... en ... um leið og sæti voru tekin í lestinni fór allt á fullt :haha: allir höfðu jú milljón sögur að segja mér ... og það öll í einu :lol: vagninn okkar varð á augabragði eins og kríuvarpið á Rifi.  En ég náði þó að henda inn einni og einni spurningu ... og sú fyrsta varð
"hvað varð um alla sólbrúnkunna sem þakti ykkur þegar þið fóruð til Íslands ... fyrir 50 dögum?"
"haha ... hún bara fór, það var ekki alltaf gott veður á Íslandi en einu sinni, einn dag, fór Kristófer bróðir okkar út og hann sólbrann"

Þau eru alveg yndisleg þessi börn ... og á þrjú bestu eintökin :D
En allavega, eftir góða ferð heim til Drammen var hoppað uppí taxa og haldið heim, og mikið hefði ég gefið fyrir faldar myndavélar til að fylgjast með þeim læðast um og gægjast (Elena kíkti meira að segja inní alla eldhússkápana til að athuga hvort að allt væri ekki alveg örugglega eins og hún skildi við það :P ;)  Bara fyndið :D

Annars er dagurinn bara búinn að vera þvílíkt yndislegur ... og hlutirnir akkurat eins og þeir eiga að vera.  Tómas Karl og Erik eru inní herbergi að gera við vindsængina okkar svo Tómas geti sofið hjá okkur (en ég gerði svo yndislega lekkert og falleg L-laga "munstur" þegar ég gekk yfir hana á pinnahælum í sumar :$).

En vitiði hvað ..... ég er svooooooo þreytt núna og ég verð að fara að binda endi á þessa frásögn mína í dag svo ég geti vaknað tímanlega í vinnuna í fyrramálið en á morgun er síðasti dagurinn sem ég hef Jeanett með mér ... fra mandag er det bare jeg ... alene ... og S-something frá Kósovó á hinum ganginum.

Natta  og vi snakkes senere :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2005 03:16:28 / Daisy

JibbyJaJei :-)

Oh what a beautiful morning, oh what a beautiful day ... :D
þau koma heim á eftir :haha:  get varla beðið  :haha:

En til að geta mætt á rettum tíma á Gardermoen til ad taka a moti teim verd eg ad drifa mig ad vinna 8)

ahhhhhh   :haha: :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 47 dögum
Þorrablót í Drammen
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  46  Alls: 99700
Leitarbox