La vita e'Bella i Happyvalley

Daisy

31.01.2006 22:43:41 / Daisy

SOS i NORGE

MAYDAY ... MAYDAY ...

Hvem skal jeg ringe nå ... det må ha vert et innbrud her, jeg klarer ikke å finne to av mine beste stekekniver 8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2006 22:15:30 / Daisy

Kóngur einn dag ... BINGÓ ... lag sem segir sex (en þó ekki í þeirri eiginlegu meiningu)

Allt mitt líf er andartak í tímans hafi
og öll þín tár þar týnast eitt og eitt.
Kóngur einn dag þann næsta ert á bólakafi
þú reynir sund, það þýðir ekki neitt.

Og eftir situr sársaukinn,
og stundum soldil hamingja.
Ef þú skyldir finn' ana
í öllum bænum grípt' ana.

Ég sem týndi sjálfum mér,
fann' ana og misst' ana
Eftir sit ég hugstola,
... ömurlega einmana.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 20:36:47 / Daisy

Jeg glemte en ting ...

Jeg ble så irretert i går når Simon gikk ut men Finn ble med videre i "Skal vi danse"

Hva tenker de på som gir stemme ... jeg vil se Simon danse igjen, Finn er fantaskisk med blomster og med sine fine briller, men Simon skulle ha blitt med videre.

Og på slutten ... Mamma, tante Heiðbrá har akkurat fortalt meg at hun skulle ALDRI snakke med deg igjen.  Hva tenkte du egenlig på når du ga julegave til henne !!!
Hun ble så veldig sint og irretert p.g.a. julegaven ... nå er hun nødd til å tenke på deg hver dag ... million ganger hver dag ;)
he he :lol: smart move ;)

LOVE TO ALL OG GOD NATT :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.01.2006 14:36:01 / Daisy

På tid ...

til å blogga litt på norsk for jeg glemmer det lille som jeg kan ;)

Helgen har vært stille og rolig.  På lørdag gikk barna på kino mens jeg var hjemme å vaske og når dem kom hjem igjen da fikk jeg å høre at dette hadde vært en kjempe morsom film, Lille kyllingen tror jeg hun heter og jeg har fått beskjed fra dem om at jeg bare MÅ kjøpe den når den kommer på DVD og da må vi dra til Mona-Lisa og Sverre og se på den hjemme hos dem ... på kino ;)  Går det bra Mona!

Hilda og Dan var her på besøk i går, så da måtte jeg jo lage vaffler for alle ... Jeg er jo alltid så snill ... ikke sant Dan ;)
Etterpå sa vi på en film, "The Passion of the Christ".  Filmen skildrer de siste tolv timene i Jesu Kristi liv ... og jeg kan helt sikker si at jeg har aldri sett film som den før, så stygg og grusom, mestparten af filmen hadde jeg handa før øyne mine :$

Og mens jeg husker ... Gratulerer med dagen i går min kjære Kristrùn og hilsen til alle i Måløy fra oss.  Jeg prøvde noen ganger å ringe til dere men fikk ikke svar, kanskje faren din hadde ikke lyst til å snakke med meg :cry: Håper i hvertfall at du fikk en kjempe hyggelig bursdag og at du likte det vi ga til deg.  Hilsen fra oss i Drammen og gleder oss til å se dere igjen så fort som mulig.
Og vi har også et bursdagsbarn i dag, Evert, til hamingju með daginn kæri frændi.  Efast ekki um að þið hafið öll haft það frábærlega æðislegt á Kanary.  Bið að heilsa familyunni, kær kveðja frá okkur í Drammen.

Ja vel ... men nå må jeg slutte i dag, netbanken og fakturer venter for meg :evil:
hade til lønnene :cry:


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 18:15:50 / Daisy

S.A.T.S.

Algjör bömmer maður ... eða hvað ...

Ég skrapp útí CC áðan til að versla aðeins og á leið minni út sá ég auglýsingaskilti frá S.A.T.S. þar sem strikað var yfir 16.jan og við hliðina stóð 1.feb.

Það þýðir að þeir eru búnir að framlengja tilboðið út janúar, sem aftur þýðir að ég hef til þriðjudags til að taka ákvörðun ... nú er að hrökkva eða stökkva ...

Er þetta sign ... :$ ... á ég að fara í ræktina :!: :!: :!:

Æi ... spái í þetta eftir helgi, hver nennir að spá í megrun og líkamsrækt á föstudagskvöldi 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 17:04:12 / Daisy

Stefnumót ...

Skildi hann hafa verið að bíða eftir dömu þetta yndælisgrey sem rétt fyrir hádegi í dag kom í bakaríið, keypti 2 urtebrød med kylling og 2 kaffi, fékk sér sæti á 2ja manna borði ....... og beið ....
Ég hélt áfram minni vinnu, afgreiddi með brosi alla þá sem komu inn í lunchörtröðinni en um leið gaf ég unga manninum alltaf gaum og lék mér með allskonar sögur um hver væri "huldumanneskjan" sem átti að fá kaffi og urtebrød með honum.
Hann varð alltaf daprari og daprari þetta grey ... og á sama tíma varð kaffið kaldara og kaldara ...
Svo þegar róaðist hjá okkur þá tók ég eftir því að Annie var líka farin að gefa manninum smá gaum og farin að velta fyrir sér hvort að greyinu væri ætlað að bíða þarna forever, við lokum jú kl.18:00
Eftir ca 20 mín fór ég til hans og spurði hvort að ég ætti ekki bara að taka kaffið og færa þeim nýtt og heitt kaffi, on the house, þegar viðkomandi kæmi.  Jú jú, hann þakkaði mér fyrir og reyndi að kreysta fram bros.  5 mín. síðar sá ég að hann tók bæði brauðin, stóð upp og labbaði út ....... karlgreyið


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 18:39:33 / Daisy

Búin að fatt'aða ....

and what a bummer :evil:    Loksins búin að fatta afhverju ég hef hvorki bloggað né lesið síðuna mína ... WHY ... jú ... afþví að ég er FEIT :cry:

"Góðan daginn, Aldís heiti ég og ÉG ER FEIT ... "  :^)

Kræst hvað ég er sokkin djúpt í sjálfsvorkunina en svona er það bara ... og ég er að vinna í bakaríi 8| ... HJÁLP 8|   Hvernig grennir maður sig þegar maður vinnur í bakaríi, og þá ekki hvaða bakaríi sem er heldur hjá Óskari bakara sem bakar allra besta brauð og bakkelsi (nei, ég er ekki á prósentum og þetta er ekki auglýsing) að maður tali nú ekki um "urtebrød med kylling" sem er það besta sem ég hef smakkað ... off a meg ... :$  og marsipankökurnar hans ... jammmmmmýýýýý 8)
En bakaríið hefur ekki bara uppá geggjað brauð og bakkelsi að bjóða, já og caffee latte (Dagga mín ... þú bara VERÐUR að fá þér latte hjá mér ;) ) því maður má jú ekki gleyma kúnnunum ... og þá er ég ekki að tala um manninn með vörtuna sem by the way hefur ekki látið sjá sig síðan um daginn :$  NEI ... ég er að tala um alla fallegu mennina sem koma að versla við okkur :haha:  JAMMÝÝÝÝÝ :haha: 
Bakkelsið og Lahell guttarnir eru komnir með hörku samkeppni ;) og Mona - Lisa, þú mátt til með að segja Are að hann er alveg við það að falla í skuggann af fasta kúnnunum sem koma að kaupa sér urtebrød í lunch ;)  Ég er ennþá að bíða eftir að hann, Thomas, PC og Monica taki sér laaaaaaaaaaaaangann lunch í Lier ...

En talandi um að vera feit.  Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur verðið bæði meðvitaður og meðvirkur.  Þannig var að SATS, sem er risa líkamsræktarkeðja hérna, sendi snemma í janúar út "janúartilboð" sem ég ætlaði að gefa mér tíma í að athuga svo ég lagði auglýsinguna til hliðar ... og gleymdi henni ...
Fann hana síðan aftur að kvöldi 16. janúar og fór þá aðeins yfir hana, og viti menn, neðanmáls mátti lesa að tilboðið gildir aðeins til 16. janúar ... og mín bara ...
"Oh well, missti af þessu ári, byrja bara í ræktinni á næsta ári" 8)

HALLÓÓÓÓ ... Er hægt að vera meira "meðvitandi blond" :klikk:

Já, og núna er ég sest niður við tölvuna sem er án efa ein besta líkamsrækt sem maður getur fundið ... FYRIR PUTTANA :lol:

En úppppppsssss ... verð því miður að kveðja og standa upp ... heyri að þvottavélin er hætt að vinda sem þýðir að ég verð að taka út og hengja upp ... og fá mér svo eina væna sneið af bananatertu ;) ... wait a sec ... why am I fat again :!: :!: :!:

Catch you later .... reyni samt fyrr en seinna :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 21:51:30 / Daisy

Jæja, þá er það ákveðið ...

Jólin verða kvödd og tekin niður í vikunni.  Síðasta skrautið verður tekið niður með athöfn næstkomandi laugardag af Dan Syvertsen en jólatréð og allt hitt tek ég sjálf niður á miðvikudaginn.

En jú, eflaust eru margir heima hneikslaðir af mér núna ... þrettándinn er löööööngu liðinn en jólaglimmeríið, tréð og meira að segja að aðventuljósið eru ennþá uppi ... why:!:

Og þá spyr ég til baka ... afhverju ekki !!!
Afhverju ekki að njóta allra ljósanna og njóta þess að hafa allt fallega jólaskrautið mitt ekki uppi, gleðja augað, fegra og stytta skammdegið :D
Norðmenn hafa þann skemmtilega vana að leifa jólapuntinu og ljósunum að standa út janúar á allmörgum heimilum.  Ég segi nú ekki að þetta sé eitthvað þjóðarsamkomulag heldur eru bara all margir sem einfaldlega láta sig það engu máli skipta þó að jólahátíðinni ljúki "formlega" á þrettánda degi jóla og leyfa bara skrautinu sínu að standa og halda áfram að gleðja :D  Mér finnst þetta algjört æði :D

Og það er meira sem finnst algjör æði ... DANSE FEBER :haha:

Alveg er það merkilegt hvað margir lifa í þeirri meiningu að þeir séu bara þokkalega frambærilegir dansarar (sama með IDOL) og verða svo sármóðgaðir þegar þeim er hafnað um áframhaldandi veru í þessarri frábæru dansarakeppni og skilja hvorki upp né niður í "fáranlegum" smekk dómaranna :lol:  Unbeliveble
Ekki það að ég haldi að ég sé eitthvað betri en aðrir (án efa myndi ég nú samt rúlla upp bæði Danse Fiber og IDOL ef það væri ekki aldursgrens í keppnunum ;) ) en ég held að sumir hljóti að vera alvarlega raunveruleikafirrtir því þeir halda hreint og beint að þeir séu unbelivebly frábærir og frambærilegir skemmtikraftar ... sem þeir eru auðvitað á sinn hátt :lol:

En jæja, Cold case er að byrja, natta to alle :haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 15:18:44 / Daisy

Sunnudagur

og ég stend á blístri .... búin að borða yfir mig og klára allann afganginn eftir matarboðið í gær :$  bara gat ekki stoppað þegar ég byrjaði enda laga ég alveg bara þokkalega gott Lasagne :haha:

En já ... það var skemmtilegt og fjölmennt hérna á Tordenskioldsgötunni í gær þegar Mæja, Biggi, Birgir, Oddrún og Aðalsteinn komu í mat og videó til okkar í gær.  Eftir matinn settumst við niður og skemmtum okkur yfir áramótaskaupinu og nokkrum þáttum af Kalla kaffi.  Þokkalega skemmtilegir þættir þar á ferð, húmorinn og pointin í hverjum þætti eru algjör snilld :lol:  Bara ein stór yfirsýn hjá framleiðundum sem böggaði mig pínu, fronthliðin á staðnum ... spáiði aðeins í hana næst þegar þið horfið á þáttinn.

Annars verð ég líka að viðurkenna það að ég er búinn að vera bloggurum til skammar undanfarnar vikur ... veit ekki alveg hverju um er að kenna en ætli það sé ekki mest þannig að þegar mest er að gerast í toppstykkinu þá er best að halda sig fjarri lyklaborðinu því maður gæti í ógáti látið hluti flakka sem eiga ekki heima fyrir allra augum ... if you know what I mean 8) 

Þannig að ... núna ætla ég að kveðja í bili, ná mér í súkkulaði og horfa á eitthverja góða DVDmynd á meðan það er rólegt í kotinu ;) 

Love to all and peace on earth ... :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 23:43:10 / Daisy

Ó mæ gúúúúdness ....

Einu sinni var .... lítil, góð og roooosalega sæt stúlka sem hafði það leiðilega lýti að vera með milljón og eina vörtu á höndunum.  Allt var reynt til að fjarlæga þessa leiðilegu kvilla en ekkert gekk, eða allt þar til henni barst til eyrna (þá að verða hálfstólpuð megabeib ... með vörtur :$ ) mikil og ótrúleg töfralausn ... LOPI!
Fólst lækningin í því að binda hnúta á lopann, einn hnútur per varta, og nudda  hverja vörtu fyrir sig með hnút.  Grafa síðan bandið í mold ... og bíða ...
Dag einn vaknaði síðan þessi undurfagra stúlka, leit á sínar nettu hendur ... og viti menn ... engin varta :haha:

Þessi litla stúlka varð síðan að föngulegri og glæsilegri konu, og síðan að móður.  Frumburður hennar bar svip hennar og fékk í vöggugjöf fleira en bara fagurt útlit móður sinnar, því jú, hann fékk líka vörtur ... milljón og eina á hnén.
Drengurinn lét þetta ekki hafa mikil áhrif á sig en þó varð ekki hjá því komist þegar gelgjan sótti á að hann vildi losna við þetta lýti sitt svo hann leitaði til mömmu sinnar sem sagði honum sögu sína.  Hann vildi prófa þótt skeptískur væri, taldi sig réttilega ekki hafa neinu að tapa ... nema jú vörtunum sínum.  Úr varð því að hann batt á lopaspottann sinn hnúta, hnúta sem hann nuddaði síðan vörturnar með og gróf síðan í mold.
Við tók biðin, biðin eftir að vörtunar létu sig hverfa á þennann ótrúlega hátt.  Og jú, sá morgunn rann upp fyrir ca mánuði síðan.  Fallegi drengurinn vaknaði, leit á hné sitt og sá ... engar vörtur :haha:  Hoppandi af gleði sýndi hann mömmu sinni kraftarverkið :lol:

En afhverju er ég að segja ykkur þessa sögu!!!  Jú, bakaríið ....
Í gær var ég að vinna í bakaríinu og þá kemur inn viðskiptavinur (fáum sem betur fer þó nokkra á degi hverjum ;) ).  En þessi kúnni var öðruvísi ... hann var með vörtu ... stóra vörtu í munnvikinu.  Hún var á stærð við stóra græna Orabaun, nema það að hún var ekki græn :lol:  Ég átti pínu erfitt með mig því mig langaði svo að segja honum hvernig hann gæti losnað við þennann extra hlut, aðskotadýrið ljóta :S
En hvernig gat ég það ... auðvitað gat ég ekki króað manninn af og farið að segja honum svona sögur, um vörtur, hnúta og lopa :!:
Svo þetta varð til þess að ég mætti illa sofin og bauguð í vinnuna í morgun því aumingja maðurinn með vörtuna sótti svo rosalega að mér í svefni í nótt að ég gerði ekkert annað en að hrökkva upp við það að vartan var að ráðast á mig :evil:
"Gunga" hrópaði vartan á mig :cry:

Spurning um að ég leiti mér að áfallahjálp :$

Sjáum hvað gerist í nótt ... hvað birtist í draumum mínum í nótt :!:
Gáum ... góða nótt elskurnar og GLEÐILEGT NÝTT BLOGGÁR :haha:


» 12 hafa sagt sína skoðun


Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 51 dögum
Þorrablót í Drammen
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 99887
Leitarbox