Jibby ... enn eitt árið ... ÉG Á AFMÆLI Í DAG GRATULERER MED DAGEN TIL MEG JEG HAR BURSDAG I DAG
Í afmælisfötunum dúlla dauðans
Ég á afmæl'í dag ég á afmæl'í dag ég á aaaaaafæli ég sjálf ég á afmæl'í dag
og gleðilegt sumar til allra frá okkur í sólinni hérna í Drammen. Men nå må jeg gå og sykle til Heggtoppen ... nesten 10km. Hade
» 17 hafa sagt sína skoðun
Amma mín á afmæli í dag ... til hamingju með daginn elsku besta amma mín
Amma mín er perla sem hefur endalaust að gefa af sjálfri sér. Alltaf er hægt að stóla á ömmu á Sandi og þar sem hún er svo mikill öðlingur hún amma mín þá var hún svo elskuleg að láta örlæti sitt, hjálpsemi, þjónustulund, þolinmæði, útsjónarsemi, brosmildi, dansrithman og ekki síst fegurðina erfast í beinan kvenlegg ... við mamma erum eins Frumburðargjöfin sjáiði til ... með fullri virðingu fyrir öllum öðrum "afleggjurum" ... æ já ... gleymdi hógværðinni
En Amma er ekki sú eina sem á afmæli í dag ... Tedda frænka fær líka hamingjuóskir frá okkur hérna í Drammen
Annars er lífið hérna farið að ganga sinn vanagang eftir yndislegt páskafrí. Mamma kvaddi mig á páskadag og flaug heim í fangið á pabba sem beið óþreygjufullur eftir sinni heittelskuðu. Takk kærlega fyrir lánið pabbi, hún stóð sig alveg eins og hetja hérna, hlakka til að sjá ykkur öll eftir 3 vikur. Mánudeginum eyddi ég svo hérna í sófanum heima með gemsann í annarri og fjarstýringuna í hinni, alveg eins og "the tippical male" Naut þess að vera ein í ajex-ilmnum áður en krakkarnir kæmu aftur heim til Drammen en þau komu í gær. Alsæl eftir páskafrí á Íslandi. Stelpurnar hlupu út med det samme til að prufukeyra nýju hjólin sín ... og þvílík lukka ég á ekki eftir að sjá mikið að þeim inni utan skólatíma, besta lausnin til að halda herberginu þeirra hreinu
En jæja, tími til að byrja að undirbúa dinnerinn, grillveisla á eftir
» 2 hafa sagt sína skoðun
Ég er ekki komin undir græna torfu ... mamma er bara að þræla mér út og núna náði ég smá mómenti til að stelast í tölvuna
Hérna hefur allt verið á öðru hundraðinu við að gera klárt fyrir fermingu frumburðarins sem verður nákvæmlega eftir einn mánuð ... 14. maí 2006
Þetta hefur gengið svona upp og ofan þar sem við mæðgur skiptumst á að vera veikar ég átti síðustu vakt sem þýðir að ég er búin að vera lasin frá því um hádegisbil í gær ... pu huuuuu .... mín vakt fer alveg að vera búin vonandi
og huffameg .... mín bíður drekkhlaðið borstofuborð af pappírsdrasli sem á eftir að sortera ... plús hárspennur og annað hárskraut dætra minna
Hilsen fra Drammen og PLEASE .... sendið mér góða strauma
» 1 hafa sagt sína skoðun
Ja hérna hér ... ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja ...
Það var skyndilega ákveðið í síðustu viku að krakkarnir færu heim í páskafrí. Ég sá fyrir mér þvílíka afslöppun og rólegheit ... en nei nei ... Haldiði að mömmu minni hafi ekki dottið í hug að skella sér til Noregs mér algjörlega að óvörum ... og þar með fóru allir draumar um afslöppun og rólegheit út um veður og vind Mamma mætti með fulla tösku af tuskum og sápu og mér var skipað á hnén til að skúra, skrúbba og bóna gólf, veggi og hurðar í páskafríinu fyrir ferminguna hans Eriks HALLÓÓÓÓ .... Fæ ég ekkert páskafrí
Annars á ég nú ekkert að vera að kvarta ... það er enginn á jarðríki sem á jafn góða mömmu og ég Óskar bakari segir bara að ég sé ofdekruð dekurrófa
En það er meira fréttnæmt frá Drammen. Við mamma fórum í bæinn áðan og splæstum nýjum hjólum á litlu dömurnar mínar. Svona sumar- og páskagjöf
Er þetta ekki rosalega flott hjól ... í Fylkislitnum Ég held að þær hljóti að vera ánægðar með þetta. Elena pantaði hjól, en það varð að vera töff ... ekkert glingur og glimmer det er bare barnslig Skildi þetta vera nógu töff fyrir hana og litlu systur hennar Vi får se
Alltaf sömu stælarnir í litla bróður ... hvað með það þótt hann horfi á fínu myndavélina mína í 11 daga ég er bara búin að vera svo upptekin með nýja kærastanum mínum að ég má ekkert vera að því að þvælast um á netinu
Við erum alltaf að gera eitthvað saman, ég og þessi elska
Eldum saman góðan mat, förum í bíó, göngutúra, á skíði, út að hjóla, í keilu og svo margt fleira sem ekki má skrifa um og þess á milli kúrum við okkur saman uppí sófa og spjöllum um heima og geyma
HAHAHAHAHA .... þvílíkur draumaheimur eins og svona gull fyrirfinnist!!! Búin að gefa upp alla von á að það fyrirfinnist hreinn og beinn heiðarlegur karlmaður ... annar en pabbi minn að sjálfsögðu
Kannski fer ég bara út með fínu kameruna mína um páskana og mynda fallega menn í miðbænum og í Aron skíðabrekkunni ... nema ég skelli mér á skíði uppá Beito hvað annað hef ég að gera á meðan krakkarnir eru heima á Íslandi og bakaríið lokað ... JÚ ... mamma benti mér á ég ætti auðvitað að byrja á femingarundirbúningum Og ég sem ætlaði að liggja og slappa af ... njóta kyrrðarinnar
En hvað um það ... það er svo laaaaaaaangt þangað til..........
En jæja, núna er mín þreytt. Vann 11 tíma í dag og hjólaði síðan 10 km heim eftir vinnu. Geðveikt dugleg ikke sant
P.S. Marinó, pabbi hringdi í mig og rak mig á netið. Spurði hvort að ég væri búin að lesa síðustu skilaboð frá þér (sem ég var reyndar ekki búin að gera þá). Hann tilkynnti mér þá að hann væri þér algjörlega sammála !!! hvaða samsæri eru þið með gegn mér
» 5 hafa sagt sína skoðun