Vá hvað ég er vitlaus ... ég sagði brandara hérna í gær og Helgunni fannst hann ekkert fyndinn og svo vitlaus er ég að ég varð eiginlega pínu sár útí hana Eru vinkonur ekki til að hlæja að vitleysunni í manni ... eða er hún kannski ekkert vinkona mín lengur Kannski var hún bara ekkert í góðum húmor eftir að hafa hlustað á fitubollufyrirlestur Ástu Möller á Bylgjunni ... já ... við kennum Ástu um húmorleysi Helgunnar
En já, auðvitað er ég ekkert vitlaus, Það er ekkert vitlaust að hætta í vinnunni sinni án þess að vera búin að finna aðra .... Eller Nei ... ég er nefninlega að hætta í bakaríinu, er bara orðin fitubolla á að vinna þarna Kannski ég ætti að hringja í Ástu og sjá hvort að hún hafi eitthver ráð handa mér Síðasti vinnudagurinn minn hjá Óskari bakara er 22. des. svo nú tekur bara við tími sjálfskönnunnar og sjálfsræktunnar til að finna út hvað mig langar að verða þegar ég verð stór Wish me luck í atvinnu- og sjálfsleytarferlinu sem nú fer í gang
Love to all
» 6 hafa sagt sína skoðun
» 1 hafa sagt sína skoðun
Stjúpsonur (asnalegt orð ) minn, Even Pålsøygard, á afmæli í dag Hann er 12 ára og býr hjá mömmu sinni í bænum Tretten uppí Guðbrandsdal, þar sem við eigum bústað. Tretten, spáiði í asnalegu bæjarnafni ... en tretten þýðir þrettán !!! Margir skemmtilegir brandarar sem maður hefur heyrt varðandi þetta bæjarnafn ... ef nafn skildi kalla. Men i hvertfall þá á hann 12 ára afmæli í dag sem þýðir að að ári verður hann táningur, (13) tretten í Tretten ég er svoooo fyndin
Og ég er heima með Ester. Stakkars vesla jenta mi er lasin í dag. Kennarinn hennar hringdi í mig í vinnuna kl.08:30 og bað mig um að sækja hana þar sem hún væri byrjuð að kasta upp þetta grey. Ég var heima með Elenu veika í síðustu viku en hún var þá sárlasin. Það er eitthver flensufaraldur að ganga núna ... vona bara að við Viðar sleppum (7-9-13) en hann verður heima með Ester á morgun svo að ef að hann ætlar að verða veikur þá passar morgundagurinn best fyrir það
En þekkiði þennann ....???????
Hjálpar þessi mynd !!!!!!!!! !!!!!!!!!!!!!!!
Þessi segir allavega alla söguna .... Ralph Macchio Enginn annar en The Karate Kid ... the one and only 15 ára á föstu var bók sem Eðvarð Ingólfsson skrifaði á sínum tíma (1984) en þá var ég einmitt 15 ára. Karate Kid var einmitt frumsýnd það árið og í mínum dagdraumum var ég 15 ára á föstu ... með Ralph Macchio
En afhverju er ég að tala um Karate Kid ... jú ... The Karate kid, var einmitt sýnd í sjónvarpinu um daginn og ég sat alveg dolfallin og horfði jafn hugfangin á "gamla kærastann minn" í dag og þá og svo í gær lá ég eins og skata í sófanum og horfði á Karate kid II Hann er BARA æðislegur og ég er viss um að hann hugsar oft til mín og veltir því fyrir sér afhverju ég bara "hætti" með honum og gjörsamlega gleymdi þessu litla gulli sem hafði svo yndislega skemmtilegt göngulag og sjarmerandi bros
En hallóóó ... má ekki alveg detta niður í eitthverja dagdrauma núna, dóttir mín þarf á mér að halda svo ég kveð að sinni og við "heyrumst" síðar
» 5 hafa sagt sína skoðun
Enn og aftur dreymdi mig skrítinn draum og aðalpersónan í draumnum var sænskur strákur sem er fastakúnni í bakaríinu. Ég held að þessir draumar mínir séu að segja mér að finna mér aðra vinnu Þessi strákur er mjög elskulegur og talar voða mikið við mig (stundum finnst mér ég vera eins og einskonar barþjónasálfræðingur Þarna í afgreiðslunni).En allavegna ... um daginn fór hann að segja mér að hann og konan hans hefðu verið að kaupa sér hús og í nótt dreymdi mig að hann kæmi til mín í bakaríið með son sinn og fór að segja mér það að hann og frúin hefðu verið að rífast og að hún hefði heimtað hringinn hans sem hann og gaf henni. Því næst safnaði hún saman öllu gullinu þeirra (hringum og lokkum) og lagði það í eina hrúgu á borðið. Náði hún svo í alla súrú ávextina á heimilinu og skar þá og kreysti sírunni yfir allt gullið til að eyðileggja það ...Já ... það er ekki öll vitleysan eins
En að gærkveldinu Það var þeim mun skemmtilegra og þessi kynning var mjög svo inspirrerandi svo nú ætlum við Birgitte að hittast fljótlega á meðan allt er í fersku minni og búa til jólaskreytingar Hlakka mikið til.
Men ... litt sein úti í dag svo nú verð ég að setja í fluggírinn og drífa mig að smyrja nesti fyrir stelpurnar og koma mér í vinnuna. Í kvöld verður það svo kósýkvöld með Beat for Beat á skjánum og eitthvað gott að borða
Ha en KJEMPE FIN dag elskurnar mínar og verið góð við hvort annað
» 3 hafa sagt sína skoðun
Lára, og þá geri ég að sjálfsögðu ráð fyrir Hödda líka, ætla að ganga með okkur Jónsmessugönguna. Ohhh hvað ég hlakka til Okkur leiddist ekkert í hin skiptin sem við gengum Lára mín
En að öðru. Þvílík martröð sem ég fékk í nótt. Vaknaði upp þokkalega þunglynd og fer dagurinn sennilega í að peppa mig upp og sannfæra sjálfa mig um að ég sé ALLS EKKI ÓMÖGULEG Jú mig dreymdi að ég væri stödd í atvinnuviðtali og áður en ég mætti hafði ég fengið skilaboð um að mæta með allar teikningar sem ég hefði gert. Svo mín mætti með möppuna mína með öllum myndum sem ég fann eftir sjálfa mig og viti menn ... það var bara gert stólpagrín að mér Hann, leiðindaskarfurinn sem tók viðtalið sagði á meðan hann skoðaði myndirnar ..."Eru þetta teikningar eftir þig ... í alvörunni ... (og svo brosti hann). Hvaða 5ára krakki hefði getað teiknað þessar myndir. Við höfum enga þörf fyrir þig hérna, ekkert sem við gætum notað þig til (og svo hló fíflið )" Það voru þung skrefin út úr skrifstofunni hans Ég var svoooooo sár.En sem betur fer var þetta bara draumur og ég ætla að nota daginn til að sannfæra sjálfa mig um að ég sé ÓGEÐSLEAG KLÁR og að ég geti allt Næstum jafn klár og Rúna Hans Óla, Dandý, Edvard Munch og Vincent Van Gogh
En að öðru skemmtilegra því að ég hlakka svo mikið til kvöldsins en við ætlum að fara 4 stelpur saman á svona jólainspirasjon kvöld í blómabúð Tínu á Heggtoppen. Heyrði í gær að 85 konur væru búnar að skrá sig á þessa kynningu en þetta er ein flottasta blómabúðin í Buskerud.Þarna verða sprenglærðar keppnisblómaskreytingarkonur ásamt innanhúshönnuði sem sýna verk sín og kenna okkur eitt og annað ásamt því að kynna það nýjasta í jólaskreytingum.Einnig verður boðið uppá tapas og eitthvað gott að drekka Hlakka mikið til en fyrst verð ég að mæta í vinnuna og fara svo eftir skólann með Elenu til Drammen að kaupa sér íþróttaskó því daman er búin að ákveða að byrja að æfa fótbolta með vinkonum sínum ... Var ekki nóg fyrir hana að sjá bróður sinn klögrast um á hækjum eftir fótboltameiðsl síðast þegar hann var hérna
Anyways ... love to all and have a wonderful day
Jæja, þá er það ákveðið ... Fimmvörðuhálsinn verður genginn í 3ja skiptið í júní á næsta ári Hele familien er að koma til Íslands þann 18. júní 2008 ... en ekki bara við ... við tökum með okkur nágranna okkar hérna af sléttunni og þau ætla að ganga jónsmessugöngu Útivistar með okkur Ég hlakka svooooooo til Er þegar búin að ganga þessa göngu 2x áður með frábærum ferðafélögum svo nú bara skora ég á Láru vinkonu til að slást í hópinn með okkur
En ég skora ekki bara á Láru heldur skora ég á ykkur öll hin ... þig líka Marinó minn að slást í hópinn með okkur í þessa frábæru ferð. Helga og Dandý, ég geri nú bara fastlega ráð fyrir ykkur en Dandý mín ... það er BANNAÐ að setja í fluggírinn og stinga okkur hin af Það eru engin verðlaun fyrir að komast fyrstur yfir ... eða jú ... fyrsti maður yfir setur upp öll tjöldin
En jæja, mér er ekki til setunnar boðið. Verð að smyrja nesti fyrir gelgjurnar á heimilinu áður en ég dríf mig í myrkrinu í bakaríið.
Eigiði öll góðan dag og smælið framan í heiminn Og Mæja og Birgir Már ... góða ferð hingað út í dag. Hlakka til að sjá ykkur
og velkomin á fætur
Stjörnubjartur himininn blasir við mér er ég sit hér við tölvuna og dreg það að mæta til vinnu ... ég bara hreinlega nenni ekki í vinnuna í dag Ég er búin að fara í sturtu, ganga frá þvottinum, smyrja nesti fyrir stelpurnar, borða morgunmat, blása á mér hárið, maðurinn minn er búinn að fara út og sækja við, kynda upp, skrapa ísinn af bílnum mínum og ég var að starta bílnum til að hita hann aðeins svo það er ekkert lengur til fyrirstöðu en að drulla sér út ... en ég bara nenni ekki ... er ég alveg glötuð eða er það ekki leyfilegt að langa heldur til að skríða aftur uppí heitt rúmið og breiða sænginni yfir hausinn og sofna aftur en að koma sér í vinnuna til að selja brauð og bakkelsi
Það er reyndar yndislegt að koma inn úr kuldanum inní heitt og vellyktandi bakarí árla morguns, fá sér kaffibolla og líta aðeins í blöðin áður er sett er í fluggírinn og hillurnar fylltar af góðgæti dagsins ... ja vel ... best að gera það
Kveð ég nú að sinni og dríf mig í vinnuna. Eigiði öll góðan og yndislegan dag í vetrarfrostinu
Hver man ekki eftir þessu lagi
Ó mamma gef mér rós í hárið á mérþví tveir litlir strákar eru skotnir í mér.Annar er blindur og hinn ekkert sér,ó mamma gef mér rós í hárið á mér.Þegiðu stelpa þú færð enga rós,farðu heldur með henni Gunnu út fjós.Þar eru kálfar og þar eru kýr, þar eru fötur til að mjólka í.
Dætur mínar hlusta mikið á íslenska músík og eitt af þeim lögum sem er í uppáhaldi hjá Ester núna er einmitt þetta lag. Hún hlustar á það aftur og aftur og syngur svo sætt með
En svo í gær kom þessi elska til mín og spurði ..."mamma ... (og svo söng hún) Ó mamma gef mér rós í hárið á mér því tveir litlir strákar eru skotnir í mér. Annar er blindur og hinn ekkert sér ...En ... ef annar er blindur og hinn ekkert sér hvernig geta þeir þá orðið skotnir í henni og afhverju þarf hún að punta sig !!!"
Er það nema von að barnið spyrji ... Eins ríkulegur og hégóminn er í okkur þá er það ekki svo sjálfgefið að börn átti sig á því sem við "fullorðnu þroskuð einstaklingarnir" þekkjum sem "fegurðina innan frá". Einn húmoristi sagði reyndar að það væru þeir "ljótu/ófríðu" einstaklingarnir sem hefðu komið með þetta spakmæli ... Hvað á það eiginlega að þíða !!!hmmmmm .... ekki sammála ....
By all means .... tjáiði ykkur um málið ....
Í dag, FARSDAG, heiðrum við feður okkar ... Til hamingju elsku pabbi minn með daginn í dag.
Ég er svo blessunnarlega heppin að eiga besta pabba í heimi.Pabbi er sá maður sem átt hefur alla mína aðdáun og virðingu frá því ég fyrst man eftir mér.Pabbi minn er með eindæmum músíkalskur og listrænn.Alltaf þegar ég heyri Dr. Hook eða færeyska músík þá verð ég 12 ára í anda og hugurinn hverfur heim í stofu í Vallholtinu þar sem pabbi sat með bassann og spilaði með Og það sem er svo ljúft ... og svo merkilegt ... er tilfinningin sem umvefur mig þá ...lítil pabbastelpa ... örugg fyrir öllu amstri, áhyggjum og striti.Bara ég í stofunni að hlusta á pabba minn spila
Pabbi er sá maður sem ég hef ALLTAF getað treyst á. Hann er þeim eiginleikum gæddur að vera með eindæmum góð manneskja. Maður sem ALDREI fer á bak orða sinna og gerir allt sem í hans valdi stendur til að við höfum það gott, fjölskylda hans og vinir.Honum líður best þegar hann veit að við höfum það friðsælt og gott.
Í gegnum tíðina hef ég kynnst allskonar fólki og sem betur fer eru jú allflestir þokkalega góðar sálir en enginn karlmaður er eins og pabbi minn ... virkilega góð sál, góður maður sem gefur bara gott af sér og er með eindæmum réttlátur.
En ... svo kynntist ég norskum bóndasyni, Vidar Pålsøygard Og ... merkilegt nokk en hann er eins og pabbi minn ... með eindæmum góður maður með góða og ljúfa sál. Og eins og pabbi þá er hann traustur sem klettur ogþolinmóðari en andskotinn Vidar og pabbi eiga það sameiginlegt að eiga börn, tengdabörn, barnabörn og stjúpbörn sem bera 100% traust, stolt og virðingu fyrir þeim ... og alla mína ást.
Og að lokum til allra aðra feðra þarna úti ... TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN
Hvað er að þegar 18 ára gamall unglingur tekur sig til og planar fjöldamorð á skólafélögum sínum! Er það virkilega svo að ENGINN hafi áttað sig á því sem var að gerast og gat stoppað hann!!! Nei, það er ekki fyrir venjulegt fólk að skilja svona og nú liggja 7 saklausir einstaklingar á líkbörum í Finnlandi ...
Og að öðru óskiljanlegu atviki, en það gerðist í gær ...
Þetta er næstum erfiðara að skilja en það sem gerðist í Finnlandi í dag !!!
WHAT'S HAPPENING IN THIS CRRRRAAAZZZZZZY WORLD TODAY
Já, það er alveg stórmerkilegt. Eftir að ég bloggaði í gær þá hef ég um fátt annað hugsað í vinnunni í dag en að komast heim á tölvuna aftur og blogga ... bara litt
Ég mundi allt í einu að ég hafði gleymt að segja ykkur frá því að stelpurnar, ásamt kórnum, eru að fara í sjónvarpsstúdíó í lok mánaðarins til að taka upp a.m.k. 3 lög sem verður svo sent út í ríkissjónvarpinu hérna, NRK, á þorláksmessu Spennandi
Annars var ég að klára að lesa bókina um Önnu frá Suðurey. Stórmerkileg kona hún Dankert-Anna eins og hún var kölluð eftir að hún missti mann sinn og barnföður, Dankert. Eignaðist og tók sjálf á móti 14 börnum sínum og tók jafnframt að sér önnur 4."Ég fæddi börnin mín eins og ærnar, auðveldlega og einsömul. Læknar voru ekki á hverju strái á þessum tíma og erfitt að ná í ljósmóðir. Nei, Drottinn hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir, segir Anna" ...Auðlesin bók sem fangar mann á augabragði og maður getur ekki annað en dáðst að dugnaði og lífsgleði hennar þar sem hún situr blind og farlama, með prjóna í hönd og bíður dauðans ... "það er ekki mikið eftir af mér núorðið ... það eina sem er í lagi er kjafturinn og góða skapið". Magnaður karakter sem margur gæti tekið sér til fyrirmyndar. Mæli eindregið með bókinni ... enda hef ég lesið hana a.m.k. 3x sjálf
Næsta bók á dagskrá er um aðra Önnu, Anna frá Stóruborg eftir Jón Trausta. Skólabókin mín síðan úr 9.bekk Ástarsaga undan Eyjafjöllum, Anna og Hjalti ... Paradísarhellir
Hade så lenge .... maðurinn minn er á leiðinni heim
» 4 hafa sagt sína skoðun
Er ekki tími til kominn að tengja .... Jú .... mér finnst það ... mér finnst ég líka hafa frá svo rooooosalega mörgu skemmtilegu, og miður skemmtilegu að segja
Alltaf er nóg að gerast hjá ungunum á heimilinu ... og OMG hvað tíminn líður og ungarnir stækka en eitthvernveginn verð ég samt ekkert eldri Mér líður oftast eins og bara enn einn unginn í Fredbo
Snuðra og Tuðra eru eins og ég áður hef sagt frá í barna gosbelkór í kirkjunni hérna, Sjåbagos heitir kórinn og voru þær á heljarinnar kórhátíð helgina sem bróðir þeirra kom frá Íslandi ... litt domt eins og Elena sagði en það var í góðu lagi, þær höfðu hann hérna til miðvikudags hjá sér
Báðar byrjuðu þær í Freestil í haust en það dugði ekki Ester svo hún er komin í reiðskóla og ætlar að verða knapi eins og tante Dís og Steini langafi Ekki lítið markmiðið það.
En svo verð ég bara að monta mig aðeins af Elenu. Daman er bara rétt og slétt snillingur Alveg eins og mamma hennar Ég komst því miður ekki í foreldraviðtalið með henni í síðustu viku þar sem ég var að keyra Erik Erni á flugvöllinn en Vidar fór með henni í minn stað. Og að viðtali loknu þá hringdi hann og hafði frá svo mörgu skemmtilegu að segja. Elena er í 5 bekk núna og voru þau að taka landspróf í norsku, ensku og stærðfræði. Í stærðfræðinni voru 51 dæmi og hún gerði hvorki meira en minna en 50 rétt ... og þetta eina sem hún gerði vitlaust fékk Vidar að sjá og það var bara fljótfærnisvitleysa En þvílíkur árangur ... og hún er með þeim hæstu í landinu. Norskan var ekki síðri hjá henni en þar var prófað í 29 atriðum og gerði hún 26 rétt. Enn og aftur með þeim hæstu í landinu. Enskan liggur líka létt fyrir henni en kennarinn var ekki búin að fá landsniðurstöðurnar en þar var hún einstök í skólanum og "mílum á undan öðrum jafnöldrum" eins og kennarinn orðaði það ... laaaanghæst Er annað hægt en að brosa út að eyrum
Ester gengur líka vel í skólanum og hefur tekið miklum framförum frá því í fyrra. Og sama er að segja af Erik Erni. Honum finnst alveg geggjað að vera kominn í framhaldsskóla og tekur námið alvarlega. Virkilega stolt af "grislingunum" mínum .... og líka hinum "grislingunum" mínum ... Even og Kristoffer. Even er í 7unda bekk og eins og Ester er hann að bæta sig með hverri vikunni. Hefur tekið stórum framförum frá því í fyrra á meðan Kristoffer er að stíga sín fyrstu skref í skólagöngu sinni, í 1sta bekk Honum finnst svooooo gaman í skólanum enda er hann orðinn hálffullorðinn þar sem hann er ekki lengur í leikskóla sjáiði til
En í allri gleðinni þá verður alltaf eitthvað að koma uppá .... og það gerðist hérna í sveitinni í síðustu viku. Það flæddi vatn undir allt parketið í kjallaranum sem við erum búin að vera að innrétta og allt gólfefni eyðilagðist Þokkalega pirrandi ... en við því var ekkert að gera og yndislegi maðurinn minn, sem BTW hefur óþrjótandi þolinmæði og er með eindæmum geðgóður sagði bara ... huffameg, nú er bara að skella sér í skó og byrja að rífa upp allt parketið, sjúga upp vatnið og setja "þurrkarann" í gang ... og mín á suðupunktinum með tárin í augunum skellti sér í skó og reif upp nýja parketið og kastaði því útum gluggann ... Svo núna erum við með "þurrkara" (svona viftu og vatnssugu) í gangi allann sólahringinn sem er að þurrka gólfið og rakann í loftinu svo við getum byrjað uppá nýtt .......
MEN ... svona er lífið ... gæti verið svoooo miklu verra ikke sant
En jæja, nú kveð ég að sinni og vona að ég hafi tíma á milli anna til að skrifa meir á síðuna mína. Verð að passa að Helgan nái mér ekki í "síðuheimsóknum"
Lov'ya all og god natt
» 2 hafa sagt sína skoðun